Þó íslensku flugfélögin geri ávallt hlé á áætlun sinni þann 25. desember þá er Íslandsflug á dagskrá hjá Delta og Airberlin þennan hátíðardag. Þó íslensku flugfélögin geri ávallt hlé á áætlun sinni þann 25. desember þá er Íslandsflug á dagskrá hjá Delta og Airberlin þennan hátíðardag.
Um kaffileytið á jóladag í hittifyrra lenti á Keflavíkurflugvelli farþegaþota á vegum easyJet sem hélt svo tilbaka til Genfar tæpum tveimur tímum síðar. Segja má að þessi flugferð hingað frá Sviss hafi sætt töluverðum tíðindum því fram til þessa var löng hefð fyrir því að allt flug, til og frá landinu, lægi niðri þennan eina dag ársins. Öfugt við það sem tíðkast annars staðar því til að mynda eru áætlunarferðir frá morgni til kvölds á jóladag, sem og alla aðra daga, á helstu flughöfnum Norðurlanda. Og þotur flestra þeirra erlendu flugfélaga sem hingað fljúga eru í loftinu á jóladag en þó ekki á leið til og frá Keflavíkurflugvelli.
Mörg hundruð farþegar um flugstöðina
Stjórnendur easyJet endurtóku hins vegar ekki leikinn í fyrra og felldu niður ferðir félagsins til Íslands á jóladag. Þá hafði Túristi það eftir Guðna Sigurðssyni, talsmanni Isavia, að það hefði verið nefnt við starfsmenn easyJet að fyrirtækið væri það eina sem nýtti sér íslenska flugvöllinn á þessum degi. Guðni sagðist þó ekki vita hvort sú ábending hafi verið ástæðan fyrir því að breska flugfélagið breytti áætlun sinni. Hvað sem því líður er ljóst að easyJet mun ekki heldur bjóða upp á jóladagsferðir til og frá Íslandi í ár. Hins vegar munu þrjár þotur leggja upp að Flugstöð Leifs Eiríkssonar þann 25. desember nk. Sú fyrsta er á vegum Delta Air Lines og mun hún lenda á Keflavíkurflugvelli í morgunsárið og fljúga tilbaka til New York um klukkan níu. Í hádeginu kemur svo fyrri vél Airberlin til landsins frá Dusseldorf og um hálf fjögur leytið kemur sú seinni frá Berlín. Í flugvélunum þremur eru samtals sæti fyrir hátt í 600 farþega og því má gera ráð fyrir að á bilinu 700 til eitt þúsund farþegar fari um Flugstöð Leifs Eiríkssonar á jóladag. En líkt og kom fram í frétt Túrista um flug easyJet í hittifyrra þá er ætlast til að verslanir séu opnar í flugstöðinni fyrir allar brottfarir og það eru því ekki aðeins flugvallarstarfsmenn og öryggisverðir sem kallaðir verða út til að sinna farþegunum. Einnig þarf að bjóða upp á sætaferðir út á flugvöll enda óhætt að fullyrða að bróðurpartur farþeganna verði erlendir ferðamenn. Umstangið í kringum þessar þrjár ferðir verður því töluvert.
Sama verð til Hawaii og heim aftur eins og aðra leiðina til New York
Þeir sem geta hugsað sér að verja hluta af jóladegi í háloftnum og bóka núna farmiða með Delta til New York þurfa að borga 188.735 krónur fyrir flugið út. Hins vegar kostar flugmiði, báðar leiðir, aðeins 63.675 kr. ef dvalið er úti til 5. janúar. Farmiði með Delta, báðar leiðir, kostar sem sagt þrisvar sinnum minna en miði aðra leiðina. Já, verðlagningin í fluggeiranum er oft sérstök og sem dæmi má nefna að sá sem bókar flug með Delta héðan á jóladag til Hawaii, með millilendingu í New York, og heim aftur þann 5. janúar borgar líka 188 þúsund krónur fyrir flugmiðann. Farið með Airberlin til Berlínar eða Dusseldorf á jóladag kostar í dag rúmar 13 þúsund krónur og skiptir þá engu hvort einnig er bókað heimflug eða ekki.