Áfengistollurinn, innanlandsflug frá Akureyri og ódýrt flug á EM í Frakklandi var meðal þess sem flestir lásu á síðum Túrista í ár. Nýr áengistollur, innanlandsflug frá Akureyri og ódýrt flug á EM í Frakklandi var meðal þess sem flestir í ár.
Þegar Túristi fór í loftið árið 2009 þá var tilgangur þessarar ferðasíðu að auðvelda lesendum að fá meira út úr fríinu. Þá var krónan í sögulegu lágmarki, flugfélögin voru að fækka flugleiðum og Íslendingar voru hvattir sérstaklega til að ferðast innanlands. Nú er staðan allt önnur en fókusinn hjá Túrista er ennþá sá sami þó vissulega hafi efnistökin víkkað verulega. Og það sést greinilega á listanum yfir þær greinar sem mest voru lesnar í ár. Þar má finna greinar um nýjan áfengistoll, samanburð á símakostnaði út í heimi, innanlandsflug frá Keflavíkurflugvelli og auðvitað upplýsingar um ódýra flugmiða til EM. En í tengslum við þátttöku íslenska landsliðsins í EM í sumar þá setti landinn met í ferðalögum út í heim.
Mest lesnu Túristagreinar ársins 2016
Íbúar Akureyrar og Reykjavíkur yrðu jafn lengi út á Keflavíkurflugvöll
Gera farþegum kleift að ganga í áfengissortir í Fríhöfninni
Mesta og minnsta sætisbilið um borð
Ódýrt flug á EM í sumar
Stjórnarráðið borgar 13.462 krónur fyrir hvern flugmiða
Fara í öll fötin sín til að sleppa við töskugjald
Segja tengingu innanlands- og millilandaflugs mikilvæga
Margfaldur verðmunur á kostnaði við gagnanotkun í ferðalaginu
Ódýrasta farið út í heim á 2.406 krónur
Þegar börnin ráða ferðinni