Bara 28 hafa skráð sig fyrir heimagistingu

reykjavik Tim Wright

Ný lög um skammtímaleigu á húsnæði gengu í gildi um áramót og hámarkssekt við broti á þeim nemur einni milljón króna. Þrátt fyrir það fara fáir eftir reglunum. Ný lög um skammtímaleigu á húsnæði gengu í gildi um áramót og hámarkssekt við broti á þeim nemur einni milljón króna. Þrátt fyrir það fara fáir eftir reglunum.
Nærri fjögur þúsund íbúðir, herbergi eða hús voru á lista hjá Airbnb hér á landi þegar bandaríska fyrirtækið gaf síðast upplýsingar um umsvif sín á Íslandi. Aðeins örlítill hluti þessara gistikosta hefur hins vegar verið skráður samkvæmt nýjum lögum um heimagistingu sem tóku gildi um áramótin. Það er sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu sem heldur utan um skráninguna og samkvæmt upplýsingum frá embættinu hefur eingöngu verið sótt um leyfisnúmer fyrir 28 eignir. Það er vel innan við eitt prósent af þeim gistikostum sem eru á skrá Airbnb en samkvæmt lögunum er skylt að birta skráningarnúmerin þegar eignir eru auglýstir á netinu og verða lagðar stjórnvaldssektir á alla þá sem það ekki gera. Þess háttar sektir nema frá 10 þúsund krónum til einnar milljónar króna.
Fasteignir í eigu fyrirtækja í gistirekstri falla ekki undir þessa skráningu en hluti af skráningum á bókunarsíðum er líklega á vegum þess háttar félaga.

Leyfisnúmerin ekki sýnileg

Líkt og Túristi greindi frá þá mun sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu halda úti könnunum á vefjum eins og Airbnb og Booking.com til að ganga úr skugga um að þar séu skráningarnúmer sýnilega. Túristi hefur síðustu daga skoðað tugi auglýsinga á íslenskum gistikostum hjá Airbnb og hvergi fundið eign þar sem leyfisnúmer kemur fram. En samkvæmt svari Airbnb við spurningu Túrista þá er hentugast að leigusalar setji númerin inn í lýsingu á hverri eign fyrir sig en þær upplýsingar er ávallt hægt að uppfæra. 

Hámarkstekjur 2 milljónir

Samkvæmt nýjum lögunum þá má einstaklingur leigja út í að hámarki 90 daga á ári og tekjur af starfseminni mega ekki fara yfir 2 milljónir á tímabilinu. Séu þessi skilyrði ekki virt þá er um að ræða brot á reglum um heimagistingu og getur það varðað afskráningu, synjun nýrrar skráningar árið eftir, viðurlögum í formi sektar og eftir atvikum tilkynningu til ríkisskattstjóra og sveitarfélags um að starfsemi sem flokka megi sem atvinnurekstur fari fram í viðkomandi húsnæði samkvæmt því sem segir á vefs sýslumanns.
Skráningargjald fyrir heimagistingu er 8.560 kr. á ári og afla þarf starfsleyfis heilbrigðisnefndar áður en sótt er um skráningu.