Samfélagsmiðlar

Keflavíkurflugvöllur hratt upp listann yfir 10 stærstu norrænu flugvellina

Íslenski flugvöllurinn úr 9. sæti í það fimmta á þremur árum. Innanlandsflug stór hluti af umferðinni á hinum flugvöllunum.

Árið 2014 fór farþegafjöldinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fram úr umferðinni um flugstöðvarnar í Billund á Jótlandi og Bromma í Stokkhólmi. Þar með komst sá íslenski á lista yfir 10 fjölförnustu flugvelli Norðurlanda.
Í hittifyrra fór Keflavíkurflugvöllur á ný upp um tvö sæti þegar farþegar þar voru fleiri en í Þrándheimi og Stavanger í Noregi. Þessi öri vöxtur hélt áfram í fyrra og þriðja árið í röð var íslenska flughöfnin hástökkvari á norræna listanum og fór upp fyrir næststærstu flugvelli Svíþjóðar og Noregs, þ.e.a.s. Landvetter í Gautaborg og Flesland í Bergen. Það er hins vegar langt upp í fjórða sætið þar sem Vantaa í Helsinki situr eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.

Eini með ekkert innanlandsflug

Líkt og Túristi hefur áður greint frá þá nýtur Keflavíkurflugvöllur ákveðinnar sérstöðu í flugheiminum því þaðan fljúga allar vélar til útlanda. Öfugt við það sem gerist og gengur annars staðar. Farþegar á leið í innanlandsflug eru því stór hluti af fjöldanum sem fer um hinar norrænu flugvellina. Langmest er innanlandsumferðin um Óslóarflugvöll og því næst um Arlanda í Stokkhólmi. Í næsta mánuði hefst hins vegar beint flug Flugfélag Íslands milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar og verður það starfrækt allt árið um kring en í fyrra voru aðeis í boði vikulegar ferðir á milli flugstöðvallanna tveggja yfir hásumarið. Þetta innanlandsflug er þó aðeins fyrir þá sem eru á leið til og frá Akureyri og útlanda og millilenda á Keflavíkurflugvelli.

Nýtt efni

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …