Samfélagsmiðlar

Breytingar hjá Icelandair

Guðmundur Óskarsson tekur við sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair og Helgi Már Björgvinsson gengur til liðs við Icelandair Group.

icelandair stm

Guðmundur Óskarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair. Hann kemur til Icelandair frá Flugfélagi Íslands þar sem hann hefur stýrt markaðs- og sölumálum frá seinasta hausti. Guðmundur tekur við starfinu af Helga Má Björgvinssyni sem mun flytja til Kaupmannahafnar í sumar með fjölskyldu sinni, þar sem eiginkona hans tekur til starfa hjá Sendiráði Íslands. Helgi mun verða með starfsstöð í Reykjavík og Kaupmannahöfn. Breytingarnar taka gildi 1. maí samkvæmt því sem segir í tilkynningu.

Báðir verið lengi hjá flugfélaginu

Helgi hóf störf hjá Icelandair í Bandaríkjunum árið 1999 sem yfirmaður Icelandair Holidays og síðar sem sölustjóri fyrir Bandaríkin og Kanada. Árið 2002 fluttist hann til London og tók við stöðu sölu- og markaðsstjóra fyrir Bretland og Írland og árið 2004 til Parísar sem svæðisstjóri fyrir Suður-Evrópu. Helgi tók við stöðu svæðisstjóra fyrir Bretland og Írland í maí 2007 en hefur verið framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair frá maí 2008. Helgi er með BS í markaðs- og stjórnunarfræði frá University of South Carolina í Columbia og meistarapróf í viðskiptafræði frá ESCP-EAP European School of Management í París.
Guðmundur hefur starfað hjá Flugfélagi Íslands frá seinasta hausti en starfaði áður hjá Icelandair frá árinu 2004, lengst af sem forstöðumaður markaðsmála og viðskiptaþróunar til haustsins 2016. Þar áður var hann markaðsstjóri Icelandair fyrir annars vegar Mið-Evrópu og hins vegar Skandinavíu í tvo ár hvort. Hann er með B.S. og B.A. gráður í Viðskiptafræði og Alþjóðasamskiptum frá Pennsylvanía State háskólanum og diplómagráðu frá Universität Leipzig í Þýskalandi.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …