Samfélagsmiðlar

Ríflega 500 fleiri áætlunarflug frá Keflavíkurflugvelli í apríl

flugtak 860 a

Sextán flugfélög flugu reglulega frá Íslandi í síðasta mánuði sem er lítil aukning frá því í fyrra en í heildina fjölgaði ferðunum hins vegar um meira en 40 prósent. Sextán flugfélög flugu reglulega frá Íslandi í síðasta mánuði sem er lítil aukning frá því í fyrra en í heildina fjölgaði ferðunum hins vegar um meira en 40 prósent.
Að jafnaði voru í boði sextíu áætlunarferðir á dag frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar í apríl og fjölgaði daglegum brottförum um 18 frá sama tíma í fyrra. Í apríl 2014 voru daglegu ferðirnar 28 talsins eða um helmingi færri en í nýliðnum mánuði samkvæmt daglegum talningum Túrista. En þó brottfarirnar hafi verið um 40 prósent fleiri í apríl þá fjölgaði flugfélögunum aðeins úr 14 í 16. Flugfélögin hafa því almennt fjölgað ferðum og áfangastöðum en apríl í fyrra var flogið héðan til 44 áfangastaða en þeir voru 55 að þessu sinni. 
Sem fyrr standa íslensku flugfélögin undir bróðurparti allra ferða en hlutdeild Icelandair og WOW hefur hins vegar breyst tölurvert milli ára eins og sjá má á skífuritinu hér fyrir neðan. Í apríl 2013 lét nærri að ein af hverjum 10 þotum sem tók á loft frá Keflavíkurflugvelli væri á vegum WOW en núna er félagið með nærri því þriðju hverja brottför. Á sama tíma hefur vægi Icelandair lækkað um nærri þrjátíu prósentustig. 

 

Nýtt efni

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …

Fataverslunin Húrra Reykjavík opnar í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor og verður þar boðið upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir farþega á leið úr landi. „Við erum að stíga stór skref með opnun þessarar nýju og glæsilegu verslunar, sem á sér stað í tilefni af 10 ára afmæli fyrirtækisins. Þetta er …

MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …

Koffínlausar kaffibaunir eru hefðbundnar kaffibaunir þar sem beiskjuefnið og örvandi hlutinn koffín hefur verið fjarlægt. Útbreiddasta og ódýrasta ferlið við að losa baunirnar við koffínið er hins vegar orðið umdeilt þar sem efnasambönd sem við það eru notuð eru nú tengd við ýmsa heilsufarskvilla.Hægt er að beita nokkrum aðferðum við að losa kaffibaunir við koffín. …

Þrjátíu og átta trilljónir er tala sem er svolítið erfitt að skilja. Trilljón er notað í Bandaríkjunum yfir það sem við Íslendingar köllum billjón, og billjón er þúsund milljarðar, eða milljón milljónir. Á núverandi gengi eru 38 trilljónir Bandaríkjadala sama og 5.320 billjónir íslenskra króna, eða 5,3 milljón milljarðar.  Það er gott að hafa þetta …

Borgaryfirvöld í Lissabon hafa samþykkt að hækka gistináttagjald úr 2 í 4 evrur. Gjaldtaka nær ekki til tjaldstæða. Þá hefur komugjald á skipafarþega verið hækkað úr 1 í 2 evrur. Tillaga um að hækka það gjald í 4 evrur var felld.  Lusa-fréttastofan hefur eftir Carlos Moedas, borgarstjóra, að það sé „sanngjarnt fyrir borgina og íbúa …