Aldrei áður hefur úrvalið af flugi héðan til Evrópu verið jafn mikið og fargjöldin eru í mörgum tilfellum mjög lág þó stutt sé í brottför. Aldrei áður hefur úrvalið af flugi héðan til Evrópu verið jafn mikið og fargjöldin eru í mörgum tilfellum mjög lág þó stutt sé í brottför.
Aðfaranótt laugardags og sunnudags fljúga þotur lággjaldaflugfélagsins Transavia frá Íslandi til Parísar og sá sem bókar miða í dag fær farið á 7000 til 7500 krónur, aðra leið. Ódýrasti miðinn með WOW til borgarinnar í næstu viku er á 9 þúsund. Ef Prag heillar meira en París þá er hægt að komast þangað fyrir 15 þúsund krónur með Czech Airlines í næturflugi á fimmtudag en ef þú býður til sunnudags þá kostar farmiðinn með Wizz Air aðeins tæpar 6.200 krónur. Þetta ungverska lággjaldaflugfélag býður álíka lág fargjöld í þessari og næstu viku til Búdapest, Gdansk og Varsjár en ódýrasti farmiðinn, í ört vaxandi Íslandsflugi félagsins, er hins vegar til pólsku borgarinnar Katowice i næstu viku. Sá kostar aðeins 3.090 krónur en 1.970 krónur fyrir meðlimi í afsláttarklúbbi Wizz Air.
Bretland, Írland, Skandinavía og Sviss
Til höfuðborgar Skotlands er hægt að fljúga í vikunni með WOW fyrir 6 þúsund en 8.400 kr. með easyJet. Farmiðar með breska lággjaldaflugfélaginu til Manchester næstu daga eru á innan við 12 þúsund krónur og til Genfar í Sviss býður easyJet sætið á 8 þúsund krónur í júní og 6.400 kr. til Basel. Ódýrasta farið með WOW til London og Amsterdam er á 10 þúsund kr. og hægt er að fá far með félaginu í júní til Cork, Bristol og Lyon í Frakklandi á 6 þúsund. Aðeins dýrara er að bóka lægstu fargjöld félagsins til Kaupmannahafnar, Stokkhólms, Brussel og Dublin. Með Icelandair og Air Iceland Connect má komast til Belfast á tæpar 15 þúsund í lok vikunnar og fyrir sama verð til Aberdeen eftir helgi og þar er innrituð taska innifalin.
Spánn og Ítalía
Í sumar er samkeppnin í flugi héðan til Barcelona meiri en áður og það sem eftir lifir mánaðar á Vueling eftir að fljúga sjö ferðir til borgarinnar frá Keflavíkurflugvelli og í dag eru farmiðarnir á annars vegar 9.500 krónur en hins vegar 15 þúsund. Það er líka hægt að fljúga heðan til Barcelona með Norwegian og ódýrustu miðarnir í þessari viku kosta rétt tæpar 9 þúsund krónur. 14.999 kr. kostar ódýrasta sætið í áætlunarferðir WOW til Barcelona næstu vikur. Það er jafn mikið og farmiði með Primera Air til ítölsku borgarinnar Trieste kostar. Til Alicante má líka komast ódýrt eins og Túristi greindi frá um helgina.
Úr miklu að moða í Þýskalandi
Lággjaldafélagið Eurowings, sem er í eigu Lufthansa, flýgur hingað á sumrin frá nokkrum þýskum borgum og sá sem pantar í dag far með félaginu til Berlínar í júní borgar í mesta lagi tæpar 15 þúsund krónur sem er aðeins dýrara en lægsta fargjald WOW. Ódýrustu farmiðarnir með Eurowings til Kölnar, Dusseldorf og Hamborg eru líka í sumum tilvikum á innan við 15 þúsund krónur næstu 2 vikur. Með Germania er hægt að finna álíka ódýra farmiða til Dresden, Nurnberg, Bremen og Friedrichshafen.
Aukagjöld bætast við
Öll dæmin hér að ofan eiga við farmiða, aðra leiðina, frá Keflavíkurflugvelli en allur gangur á því hvort heimflugið kosti það sama, minna eða miklu meira. Þeir sem vilja ferðast með meira en handfarangur þurfa í nær öllum tilvikum að borga aukalega fyrir innritaðar töskur. Á sumum flugleiðum bjóða fleiri en tvö flugfélög upp á áætlunarferðir og þá getur verið kostur að fljúga út með einu félagi en heim með öðru, auðvelt er að skoða þess háttar með því að nota bókunarvél Momondo.
Nýta má þessa leitarvél hér til að bera saman verð á gistingu og hér er samansafn á síðum fyrir þá sem vilja heldur leigja íbúð eða hús í útlöndum.