Samfélagsmiðlar

Icelandair stokkar upp markaðssviðið

Fleiri verkefni til Íslands og fækkun millistjórnenda á erlendum starfsstöðvum flugfélagsins.

icelandair markads

Ábyrgð á sölu- og markaðsmálum Icelandair verður í auknum mæli færð til Íslands og millistjórnendum mun fækka á erlendum starfstöðvum fyrirtækisins. En líkt og Túristi greindi frá þá lokaði félagið nýverið söluskrifstofum sínum í Stokkhólmi, Ósló og Helsinki. „Það er öllum fyrirtækjum hollt að fara í gegnum skipulagsbreytingar og í því liggja fjölmörg tækifæri. Með þessum breytingum blæs flugfélagið, sem fagnar 80 ára afmæli á þessu ári, til frekari sóknar með nýju og liprara skipulagi sem mun skerpa áherslur, auka skilvirkni og gera þjónustu okkar enn betri,“ segir Guðmundur Óskarsson, framkvæmdastjóri Sölu- og markaðssviðs, í tilkynningu.

Í nýju skipulagi hjá Icelandair taka þessir einstaklingar við nýjum forstöðumannastöðum; Jón Skafti Kristjánsson verður forstöðumaður markaðsdeildar og narkaðssamskipta, Þórdís Anna Oddsdóttir verður yfir tekjustýringu, Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir leiðir nýtt svið sem kallast notenda- og þjónustuupplifun, Einar Páll Tómasson tekur við sölusviði, Sarah Unnsteinsdóttir verður forstöðumaður þjónustuvers og Árni Sigurðsson heldur áfram sem yfirmaður söludreifingar líkt og hann hefur gert í um 20 ár. Hins vegar á eftir að ráða í stöðu forstöðumanns sölu- og þjónustu um borð.

Nýtt efni
Veitingaþjónusta

Íslenskt atvinnulíf er mjög háð aðfluttu vinnuafli. Það á ekki síst við um ferðaþjónustuna. Umsvif hennar væru mun minni ef ekki kæmu hingað útlendingar þúsundum saman til starfa á ári hverju. Samkvæmt Hagstofunni voru 35.233 starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi í júní 2023. Þar af voru um 15.500 útlendingar.  Heildartalan yfir þá sem …

Áætlunarflug milli Akureyrar og London hófst í lok október og síðan þá hafa þotur Easyjet flogið þessa leið tvisvar í viku en engin talning fer fram á fjölda ferðamanna á Akureyrarflugvelli öfugt við það sem tíðkast á Keflavíkurflugvelli. Til að meta fjölda breskra ferðamanna í beina fluginu þarf því að styðjast við gistináttatölur Hagstofunnar en …

Frakkar fjölmenna til Íslands allt árið um kring og í fyrra flugu frá Keflavíkurflugvelli 99 þúsund farþegar með franskt vegabréf. Það jafngildir því að fimm af hverjum 100 ferðamönnum hér á landi séu franskir enda eru flugsamgöngur milli Íslands og Parísar tíðar og stefnir í að þeir verði óvenju miklar næsta vetur. Það eru því …

Mitt inn í dimmum Grünheideskógi skammt frá Berlín hafa 80 manneskjur komið sér fyrir í kofum sem þau hafa byggt hátt uppi trjánum. Kofaþorpið eru bækistöðvar mótmælenda eða aðgerðarsinna eins og þau kalla sig. Einmitt inni í þessum sama skógi hyggst bandaríski rafmagnsbílaframleiðandinn Tesla stækka svokallaða gígaverksmiðju sem var tekin var í notkun í mars …

Lufthansa hefur náð samkomulagi við verkalýðsfélagið Verdi og þar með er endi bundinn á langa vinnudeilu við flugvallarstarfsfólk þýska flugfélagsins. Flugáætlun Lufthansa fer því ekki úr skorðum yfir páskana líkt og útlit var fyrir en félagið er með þrjár flugferðir til Íslands á áætlun sinni yfir hátíðarnar. Hinn nýi samningur Verdi og Lufthansa kemur í …

Það voru 561 þúsund skráðar gistinætur hér á landi í febrúar sem er um 2,5 prósent samdráttur í samanburði sama tímabil í fyrra. Ef tekið er tillit til hlaupársdagsins þá var fækkunin ennþá meiri eða nærri 6 af hundraði. Á hótelum landsins voru gistinæturnar 373 þúsund sem er ögn meira en í febrúar í fyrra …

Þegar Hagstofan leggur mat á breytingar á verðlagi þá er meðal annars horft til fargjalda, bæði í flug innanlands og til útlanda. Samkvæmt nýjum verðmælingum Hagstofunnar þá lækkaði farið frá Keflavíkurflugvelli um 5 prósent í mars en farþegar í innanlandsflugi þurftu að borga 16 prósent meira en í fyrra. Á sama tíma hækkaði verðlag í …

„Undanfarna mánuði hafa stjórnmálamenn og verkalýðsforingjar viðrað hugmyndir um að hækka virðisaukaskattshlutfall ferðaþjónustu í 24%. Almenn greining á grundvelli viðtekinnar þjóðhagfræði, sem SAF hefur látið vinna, bendir til þess að slík hækkun myndi almennt hækka verðlag og þar með verðbólgu á viðkomandi ári, lækka veltu í ferðaþjónustu, veikja samkeppnishæfni hennar, lækka verga landsframleiðslu og auka …