Þrátt fyrir aukna umferð um Flugstöð Leifs Eiríkssonar þá var hámarks bið við vopnaleitina um tíu mínútur en langflestir biðu helmingi skemur. Sá árangur náðist í júní á Keflavíkurflugvelli að 89 prósent farþega biðu í röð við öryggisleit í fimm mínútur eða skemur og nánast allir, eða 98 prósent biðu í minna en 10 mínútur. Upplýsingarnar eru fengnar úr sérstöku kerfi sem fylgist með biðtíma farþega á flugvellinum. Í tilkynningu á vef Isavia segir að unnið hafi verið hörðum höndum að því að halda biðröðum í öryggisleit í lágmarki og að þessar tölur sýni glögglega að það hafi tekist vel í júnímánuði. Þessi árangur náðist þrátt fyrir að um flugvöllinn hafi farið um 280.000 brottfararfarþegar í mánuðinum, og er hann þar með þriðji stærsti mánuðurinn á Keflavíkurflugvelli frá upphafi, á eftir júlí og ágúst 2016.
„Þessi frábæri árangur hefur náðst með því að taka í notkun fullkomnari tækjabúnað, endurskipuleggja vinnubrögð og fjölga starfsfólki. Það er sérstaklega ánægjulegt hvað vel hefur gengið að ráða inn nýtt starfsfólk og hversu hratt það hefur náð að tileinka sér fagleg og góð vinnubrögð,“ segir Þröstur Söring framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Keflavíkurflugvallar.
Stuttur biðtími þrátt fyrir mikla fjölgun farþega
Þrátt fyrir aukna umferð um Flugstöð Leifs Eiríkssonar þá var hámarks bið við vopnaleitina um tíu mínútur en langflestir biðu helmingi skemur.
5. júlí 2017