Samfélagsmiðlar

Vægi innlendra flugfélaga hvergi meira en á Íslandi

Í sumar fljúga 24 flugfélög til og frá Keflavíkurflugvelli og þar af eru þrjú íslensk. En þó heimaflugfélögin séu fá þá standa þau undir átta af hverjum tíu ferðum sem er meira en gerist og gengur annars staðar í Evrópu.

flug danist soh

Í sumar fljúga 24 flugfélög til og frá Keflavíkurflugvelli, þar af þrjú íslensk. En þó heimaflugfélögin séu fá þá standa þau undir átta af hverjum tíu ferðum sem er meira en gerist og gengur annars staðar í Evrópu.
Framboð á flugi til og frá Íslandi hefur aukist mjög hratt síðustu ár, ekki aðeins yfir sumarið heldur allt árið um kring. Það eru nefnilega ekki svo mörg ár síðan að það voru nær eingöngu Icelandair og Iceland Express sem héldu uppi nær öllum samgöngunum frá Keflavíkurflugvelli. En þrátt fyrir að Ísland sé nú hluti af leiðakerfi um 20 erlendra flugfélaga þá er það ennþá þannig að bróðurpartur allra flugferða, til og frá landinu, er á vegum þeirra íslensku.
Samkvæmt útreikningum OAG Schedules Analyser, sem flugritið Anna.aero greinir frá, þá verða í heildina í boði 3,5 milljónir flugsæta frá Íslandi í sumar (apríl til október) og 8 af hverjum tíu þeirra eru í þotum Icelandair og WOW air auk Air Iceland Connect. Í júní var vægi íslensku flugfélaganna samanlangt 78,3% samkvæmt talningu Túrista. Í engu öðru Evrópulandi er hlutdeild flugfélaga heimamanna eins mikil eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan en innan sviga eru heildarframboð flugsæti í sumaráætlun ársins.

Nýtt efni

Áætlunarflug milli Akureyrar og London hófst í lok október og síðan þá hafa þotur Easyjet flogið þessa leið tvisvar í viku en engin talning fer fram á fjölda ferðamanna á Akureyrarflugvelli öfugt við það sem tíðkast á Keflavíkurflugvelli. Til að meta fjölda breskra ferðamanna í beina fluginu þarf því að styðjast við gistináttatölur Hagstofunnar en …

Frakkar fjölmenna til Íslands allt árið um kring og í fyrra flugu frá Keflavíkurflugvelli 99 þúsund farþegar með franskt vegabréf. Það jafngildir því að fimm af hverjum 100 ferðamönnum hér á landi séu franskir enda eru flugsamgöngur milli Íslands og Parísar tíðar og stefnir í að þeir verði óvenju miklar næsta vetur. Það eru því …

Mitt inn í dimmum Grünheideskógi skammt frá Berlín hafa 80 manneskjur komið sér fyrir í kofum sem þau hafa byggt hátt uppi trjánum. Kofaþorpið eru bækistöðvar mótmælenda eða aðgerðarsinna eins og þau kalla sig. Einmitt inni í þessum sama skógi hyggst bandaríski rafmagnsbílaframleiðandinn Tesla stækka svokallaða gígaverksmiðju sem var tekin var í notkun í mars …

Lufthansa hefur náð samkomulagi við verkalýðsfélagið Verdi og þar með er endi bundinn á langa vinnudeilu við flugvallarstarfsfólk þýska flugfélagsins. Flugáætlun Lufthansa fer því ekki úr skorðum yfir páskana líkt og útlit var fyrir en félagið er með þrjár flugferðir til Íslands á áætlun sinni yfir hátíðarnar. Hinn nýi samningur Verdi og Lufthansa kemur í …

Það voru 561 þúsund skráðar gistinætur hér á landi í febrúar sem er um 2,5 prósent samdráttur í samanburði sama tímabil í fyrra. Ef tekið er tillit til hlaupársdagsins þá var fækkunin ennþá meiri eða nærri 6 af hundraði. Á hótelum landsins voru gistinæturnar 373 þúsund sem er ögn meira en í febrúar í fyrra …

Þegar Hagstofan leggur mat á breytingar á verðlagi þá er meðal annars horft til fargjalda, bæði í flug innanlands og til útlanda. Samkvæmt nýjum verðmælingum Hagstofunnar þá lækkaði farið frá Keflavíkurflugvelli um 5 prósent í mars en farþegar í innanlandsflugi þurftu að borga 16 prósent meira en í fyrra. Á sama tíma hækkaði verðlag í …

„Undanfarna mánuði hafa stjórnmálamenn og verkalýðsforingjar viðrað hugmyndir um að hækka virðisaukaskattshlutfall ferðaþjónustu í 24%. Almenn greining á grundvelli viðtekinnar þjóðhagfræði, sem SAF hefur látið vinna, bendir til þess að slík hækkun myndi almennt hækka verðlag og þar með verðbólgu á viðkomandi ári, lækka veltu í ferðaþjónustu, veikja samkeppnishæfni hennar, lækka verga landsframleiðslu og auka …

Xiaomi er hraðvaxta hátæknifyrirtæki í Beijing í Kína, stofnað fyrir 14 árum af frumkvöðlinum og milljarðamæringnum Lei Jun og félögum hans. Á síðasta ári var fyrirtækið í þriðja sæti á lista þeirra sem seldu flesta farsímana - næst á eftir Samsung og Apple. Xiaomi framleiðir og selur margskonar annan háþróaðan tæknibúnað og neytendavörur en samdráttur …