Í opinberri umræðu um ferðaþjónustuna hefur talning Ferðamálastofu á erlendum ferðamönnum á Keflavíkurflugvelli lengi verið helsti mælikvarðinn á umsvif atvinnugreinarinnar. Ferðamálastofa birtir niðurstöður þessarar talningar mánaðarlega í samantekt á heimasíðu sinni og þá undir þeim formerkjum að um sé að ræða upplýsingar um fjölda erlendra ferðamanna á Íslandi. Í frétt á vef Ferðamálastofu, þar sem niðurstöðurnar fyrir nýliðinn ágúst eru kynntar, hefur hins vegar verið breytt út af vananum og nú er ekki lengur talað um fjölda þeirra ferðamanna sem fóru frá landinu heldur aðeins fjölda flugfarþega undir fyrirsögninni „284 þúsund brottfarir erlendra farþega í ágúst“. Fyrirsögnin var hins vegar „242 þúsund erlendir ferðamenn í ágúst“ þegar tölurnar fyrir sama tíma í fyrra voru birtar. Þá stóð jafnframt í textanum að heildarfjöldi ferðamanna fyrstu átta mánuðina hefði verið 1,2 milljónir en í nýjustu fréttinni segir aftur á móti að það sem af er ári hafi 1,5 milljónir erlendra farþega farið frá landinu. Þessar mikilsmetnu tölur ná því ekki lengur yfir fjölda erlendra ferðamanna hér á landi heldur aðeins þá flugfarþega sem fara í gegnum vopnaleitina í Leifsstöð þar sem talningin fer fram.
Tugþúsundir sjálftengifarþega
Af frétt Ferðamálastofu að dæma þá er ástæðan fyrir þessari breytingu sú að nýleg könnun, meðal farþega á Keflavíkurflugvelli, sýndi að 11% brottfararfarþega nota flugvöllinn eingöngu til millilendingar eða stoppa yfir daginn en gista þó ekki. Þá voru 3% brottfararfarþega erlendir ríkisborgarar sem búa á Íslandi til skemmri eða lengri tíma. Þessi könnun var gerð vegna mikillar umræðu sem skapaðist i vor vegna umfjöllunar Túrista þar sem bent var á að vísbendingar væru um að hópur svokallaðra sjálftengifarþega væri hugsanlega að valda skekkju í talningu ferðamanna. Isavia og Ferðamálastofa sendu frá sér tilkynningu í kjölfar greinar Túrista þar sem segir að það sé mat Isavia að farþegar sem aðeins hafa viðdvöl í landinu til skemmri tíma, eða tengja sjálfir á milli flugfélaga, hafi í gegnum tíðina ekki verið að valda skekkju í þjóðernatalningunum svo neinu nemi.
Það kom hins vegar á daginn að skekkjan nam 14% í könnuninni í júlí og ferðamannafjöldinn í þeim mánuði því mögulega ofmetinn um 38 þúsund einstaklinga. Ráðgert er að gera nýja könnun meðal brottfararfarþega í vetur og þá kemur í ljós hvort hlutfall sjálftengifarþega og erlenda íbúa á Íslandi verður hærra eða lægra en það var í júlí.
Líkt og þurrka út apríl og maí í fyrra
Í nýrri skýrslu Arion banka um íslenska ferðaþjónustu, sem kynnt var í morgun, er þessi fyrrnefnda skekkja tekin í inn í tölur um ferðamannafjölda og að „áætlaður raunverulegur fjöldi ferðamanna“ í fyrra hafi því verið 1,55 milljónir en ekki 1,77 milljónir. Skýrsluhöfundar segja þó að þessi skekkja breyti ekki stóru myndinni. Í ljósi þeirrar fullyrðingar má benda á að ef ferðamenn hafa verið ofmetnir um 220 þúsund í fyrra, líkt og segir í kynningu Arion banka, þá jafngildar það öllum þeim erlendu ferðamönnum sem hingað komu í apríl og maí í fyrra samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Og ferðamennirnir í júlí í fyrra voru litlu fleiri en sem nemur skekkjunni eða 236 þúsund.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, hefur hins vegar sagt að mikilvægt sé að ofmeta ekki skekkjuna og hún hafi alltaf legið fyrir líkt og kom fram í svörum hennar við fyrirspurnum Túrista.