Ef þú vilt komast hjá því að blaða í gegnum ógrynni af hóteltilboðum á stóru bókunarsíðunum þá gæti Tablet+Michelin verið rétti staðurinn fyrir þig. Þar á bæ er nefnilega aðeins að finna nokkur hótel í hverri borg fyrir sig og oftar en ekki er um að ræða minni hótel sem tilheyra ekki stórum keðjum. Vissulega eru nokkur þarna rándýr en inn á milli má finna freistandi hótel í milliflokki og nokkur ennþá ódýrari. Þá skrifast verðið jafnvel á staðsetningun og því vissara að skoða almennilega lýsinguna sem gefin er.
Smelltu hér til að skoða fína úrvalið
Ef ekkert af þessu hittir í mark þá má líka nota leitarvélina hér fyrir neðan til að bera saman kjör á gistingu í París: