Samfélagsmiðlar

Tekjuhæsti íslenski leigusalinn á Airbnb með 236 milljónir

Umsvif bandarísku gistimiðlunarinnar Airbnb halda áfram margfaldast á íslenska markaðnum og tekjur þeirra sem þar leigja út fasteignir geta skipt tugum og jafnvel hundruðum milljóna króna.

Mynd: Sigurjón Ragnar/sr-photos.com

Tekjur Airbnb af leigu í Reykjavík jukust um helming í september.

Á bilinu 6 til 7 þúsund íslensk gistirými eru að jafnaði í boði á vef Airbnb og 273 þeirra eru á vegum þeirra 10 leigusala sem hæstu tekjurnar hafa af útleigu í gegnum Airbnb hér á landi og samtals námu tekjur hópsins rúmum 1,1 milljarði síðastliðna 12 mánuði. Sá umsvifamesti hefur á þessum tíma fengið greidda leigu upp á 236 milljónir fyrir 47 gistirými og fjórir aðrir leigusalar fengur meira en hundrað milljónir frá Airbnb samkvæmt þeim upplýsingum sem nálgast má í gegnum Mælaborð ferðaþjónustunnar sem Stjórnstöð ferðamála opnaði á föstudaginn. Þar kemur einnig fram að velta Airbnb hér á landi var 15,2 milljarðar fyrstu níu mánuði ársins og þar af um 2 milljarðar króna í september. Í þeim mánuði jukust umsvifin bandaríska fyrirtækisins um helming á höfuðborgarsvæðinu en um rúmlega fjórfölduðust á landsbyggðinni.

Tekjur fyrirtækisins sjálfs, af starfsemi sinni á Íslandi, hafa því verið rúmlega 450 milljónir fyrstu níu mánuði ársins því samkvæmt svari Sofia Gkiousou hjá Airbnb, við fyrirspurn Túrista, þá greiðir fyrirtækið 97% af leigunni til leigusalanna eða gestgjafanna eins og þeir eru nefndir innan kerfisins. Í svari Gkiousou segir jafnframt að leigutekjur hins hefðbundna íslenska gestgjafa séu 1,1 milljón króna á ári og að viðkomandi leigi út í um 60 daga á ári. Vert er að benda á að ekki fást upplýsingar um meðaltekjur íslenskra leigusala hjá Airbnb heldur aðeins tekjur hins „hefðbundna gestgjafa“ og eins fékk Túristi ekki svar við spurningunni um fjölda þeirra gistinga sem Airbnb hefur miðlað á Íslandi í ár. Skortur á svörum og ónákvæmar upplýsingar eru reyndar almenna reglan hjá Airbnb og sjaldnast er orðið við beiðnum um frekari útskýringar á svörum.

Það þarf því ekki að koma á óvart að þær upplýsingar sem finna má í Mælaborði ferðaþjónustunnar, um umsvif Airbnb, eru ekki byggðar á gögnum frá fyrirtækinu sjálfu heldur upplýsingum frá Airdna en það fyrirtæki hefur sérhæft sig í að sækja upplýsingar á vef Airbnb. Íslensku bankanir hafa einnig notað gögn frá Airdna í sínar greiningar. Sofia Gkiousou hjá Airbnb vill hins vegar meina að þessi gögn séu ónákvæm meðal annars vegna þess að þau taki ekki tillit til mismunandi gistikosta, ónákvæmra skráninga og þess að dagatöl gestgjafa geti verið óuppfærð. Þetta ásamt öðru valdi því skekkju í gögnum þeirra fyrirtækja sem sækja upplýsingar inn á vefsíðu Airbnb líkt og Airdna gerir. Aðspurð um þessa gagnrýni, segir Abigail Long hjá Airdna, að aðferðafræði fyrirtækisins taki tillit til þessara þátta og tækni fyrirtækisins geri því kleift að greina dagatöl leigusalanna nákvæmlega.

Mælaborð ferðaþjónustunnar hefur að geyma upplýsingar um fleiri þætti ferðaþjónustunnar en aðeins Airbnb. Þar er einnig að finna tölur yfir fjölda ferðamanna, fram­boð á gist­i­rým­i, nýt­ingu hót­elher­bergja, kom­ur og dreif­ingu skemmti­ferðaskipa, fjölda starfs­manna í at­vinnu­grein­inni, gjald­eyris­tekj­ur og fjöldi bíla­leigu­bíla. Þess­ar töl­ur má skoða nán­ar á vefsíðunni eft­ir árum, landsvæðum, sveit­ar­fé­lög­um, at­vinnu­grein­um, þjóðern­um með myndrænum hætti. Von er á ítarlegri upplýsingum því viðræður standa yfir við fjöl­marg­ar stofn­an­ir um birt­ingu á fleiri gögn­um sem varði ferðaþjón­ust­una og þróun henn­ar samkvæmt því sem segir í tilkynningu frá Stjórnstöð ferðamála.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …