Um áramót hefst skipunartími nýs ferðamálastjóra en Ólöf Ýrr Atladóttir, sem gegnt hefur embættinu síðastliðinn áratug, hafði áður gefið út að hún myndi ekki sækja um stöðuna á ný. Þegar Ólöf Ýrr var ráðin sóttu 50 manns um starfið en núna voru umsækjendurnir 23 talsins en umsóknarfrestur rann út um mánaðarmótin. Gerð var krafa um meistarapróf að þessu sinni kann það að vera ein skýringin á því að umsækjendur eru færri nú en þegar staðan var síðast auglýst í lok árs 2007.
Meðal þeirra sem sóttu um embætti ferðamálastjóra er fólk sem sinnt hefur ferðaþjónustu á opinberum vettvangi en líka einstaklingar sem hafa verið í forsvari fyrir ferðaþjónustufyrirtæki. Það er ráðherra ferðamála sem skipar í stöðuna og segir Ólafur Teitur Guðnason, aðstoðarmaður ráðherra, að ráðningin hafi sinn gang samkvæmt lögum og henni verði hvorki flýtt né seinkað vegna stjórnarskipta.
Þau sem sóttu um embætti ferðamálastjóra:
Aldís Guðný Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri
Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri
Áshildur Bragadóttir, forstöðumaður
Dóra Magnúsdóttir, varaborgarfulltrúi
Dofri Hermannsson, framkvæmdastjóri
Eva Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri
Finnur Gunnþórsson, fyrirtækjaráðgjafi
Dr. Gunnþóra Ólafsdóttir, mannvistarlandfræðingur
Gústaf Adolf Skúlason, stjórnmálafræðingur
Halldór Halldórsson, viðskiptafræðingur
Heimir Jónasson, framkvæmdastjóri
Hermann Ottósson, framkvæmdastjóri
Hrafnhildur Þórisdóttir, ferðamálafræðingur
Kristín Helga Birgisdóttir, hagfræðingur
Ólína K. Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur
Rósbjörg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
Sigurjón Þórðarson, stjórnunarráðgjafi
Skarphéðinn Berg Steinarsson, viðskiptafræðingur
Steinar Frímannsson, leiðsögumaður
Valdimar Björnsson, fjármálastjóri
Þorsteinn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, rekstrarhagfræðingur
Þuríður Halldóra Aradóttir Braun, forstöðumaður