Samfélagsmiðlar

Hættir sem framkvæmdastjóri Icelandair

Birkir Hólm Guðnason lætur af störfum hjá Icelandir eftir skipulagsbreytingar.

birkir holm icelandair

Birkir Hólm Guðnason

Stjórn Icelandair Group hefur ákveðið að gera breytingar á skipulagi samstæðunnar sem fela það í sér að rekstur og starfsemi Icelandair Group og Icelandair verður samþætt með þeim hætti að einn forstjóri verður yfir báðum félögum auk þess sem fjármálasvið félaganna verða sameinuð. Forstjóri verður Björgólfur Jóhannsson og framkvæmdastjóri fjármála verður Bogi Nils Bogason. Þá verða IGS, sem sinnir flugþjónustu á Keflavíkurflugvelli, og Icelandair Cargo, hluti af Icelandair, en þessi félög hafa verið dótturfélög Icelandair Group. Birkir Hólm Guðnason lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Icelandair eftir að hafa sinnt þeirri stöðu frá árinu 2008.

Í tilkynningu frá Icelandair segir að með breytingunni náist fram skýrari áhersla á kjarnastarfsemi félagsins og er samþættingin skref í átt að aukinni einföldun og hagkvæmni í rekstri. „Breytingin er liður í því að styrkja félagið enn frekar og skerpa á áherslum í rekstrinum. Flugstarfsemi félagsins vegur þyngst í rekstri og afkomu samstæðunnar og það er mikilvægt að skipulag félagsins endurspegli þá staðreynd. Félagið er í sterkri stöðu til að takast á við breytingar í rekstrarumhverfinu og nýta tækifæri sem gefast á mörkuðum félagsins. Breytingin styður við áframhaldandi sókn félagsins og gerir því kleift að sinna áfram þörfum viðskiptavina sinna á hagkvæman hátt með góða þjónustu að leiðarljósi. Ég vil þakka Birki Hólm Guðnasyni fyrir gott starf sem framkvæmdastjóri Icelandair. Hann á stóran þátt í vexti og velgengni félagsins á undanförnum árum,“ segir  Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Icelandair Group, í tilkynningu.

Nýtt efni

Faxaflóahafnir héldu vorfund sinn fyrir helgi til að kynna fyrirtækjum í ferðaþjónustu skipulag sumarsins við móttöku skemmtiferðaskipa, sem tekur mið af því raski sem verður vegna byggingar farþegamiðstöðvar Faxaflóahafna. Þeim framkvæmdum á að ljúka að tveimur árum liðnum, eins og FF7 greindi nýverið frá. Fram kom á fundinum að gert er ráð fyrir rúmlega 308 …

Fréttaveitan Bloomberg sagði frá því á dögunum að mikil úlfúð ríkti í alþjóðlegu kolefnisvottunarsamtökunum Science Based Targets initiatives, eða SBTi.  Fyrirtæki um allar koppagrundir hafa lengi reitt sig á vottanir frá SBTi þegar þau hafa fullyrt að þau stefni að kolefnishlutleysi.  Yfirleitt er kannski lítil ástæða til þess að fólk kippi sér upp við slæman starfsanda og …

Þegar lent er á flugvelli á ESB-svæðinu bíður farþeganna ekki verslun með tollfrjálsan varning við töskubeltin. Þess háttar er aðeins í boði fyrir brottför. Í Evrópuríkjum utan ESB gefst hins vegar tækifæri til að kaupa ódýrara áfengi við komuna eins og við þekkjum frá Keflavíkurflugvelli. Þeir sem nýta tollinn sinn þar til að kaupa léttvín …

Þrjár þotur Loftleiða munu næstu misseri fljúga viðskiptavinum erlendra ferðaskrifstofa hringinn í kringum heiminn. Um borð eru sætin stærri og færri en í hefðbundnu áætlunarflugi enda kostar ferðalagið skildinginn. Hver farþegi borgar 25 milljónir fyrir ferðalag líkt og farið var yfir í fréttum Stöðvar 2.  Það er ekkert nýtt að Icelandair leigi þotu og áhöfn í …

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …