15,9 miljónir erlendra ferðamanna hafa lagt leið sína um Miami síðastliðna 12 mánuði og er það algjört met. Tölur ferðamálaráðs borgarinnar sýna líka að útlendingarnar sem heimsækja borgina eyða meiru á meðan dvöl þeirra stendur. Og forsvarsmenn ferðamála í Miami eru ekki í vafa um að þennan fína árangur megi skrifa á auknar flugsamgöngur til og frá borginni en 96% þeirra útlendinga sem heimsækja borgina koma þangað flugleiðina.
Síðustu misseri hefur borgin komist á kortið hjá sífellt fleiri erlendra flugfélag og til að mynda hóf WOW air að fljúga til Miami í vor og mun halda uppi áætlunarferðum þangað út veturinn en gera hlé á fluginu næsta sumar. Miami er líka hluti af leiðakerfi skandinavískra flugfélaga en Svíar, Norðmenn og Danir eru einmitt meðal fjölmennustu þjóðanna í hópi erlendra ferðamanna í borginni.
Smelltu til að skoða sérvalin hótel á vegum Tablet í Miami