Frá Keflavíkurflugvelli er nú flogið til fleiri áfangastaða en fyrr og samkeppnin á flugleiðunum er meiri en áður. Allt þetta úrval setur Túristi upp tvisvar á ári og til að einfalda fólki að finna réttu ferðina út í heim. Þessar samantektir hafa fallið í kramið hjá lesendum Túrista eins og sjá má á listanum yfir þær 10 greinar sem flestir lásu á síðunn í ár. Þar er einnig að finna fréttaskýringu á ofmati á ferðamannafjöldanum, verðsamanburð á innanlandsflugi hér og í nágrannalöndunum, verðkönnun á bílaleigubílum og samanburð á vínum í Fríhöfninni og margt fleira.
Mest lesnu ferðagreinar ársins 2017:
- Allt áætlunarflug vetrarins
- Er ferðamannafjöldinn ofmetinn?
- Nokkrir Íslendingar stöðvaðir í hverri viku
- Tekjuhæstu Airbnb leigusalarnir
- Allt að 40% ódýrara að kaupa vínið í Fríhöfninni
- Verðið á bílaleigunum við Keflavíkurflugvöll hríðlækkar
- Hið óvænta aðdráttarafl Belfast
- Innanlandsflugið hér á landi ekki alltaf það dýrasta
- Þessi þrjú koma til greina sem næsti ferðamálastjóri
- Óumflýjanlegt að rútumiðinn hækki