Sala er hafin á beinu flugi Icelandair á leiki Íslands í riðlakeppninni á HM í Rússlandi á er hafin. Um er að ræða tveggja sólarhringa ferðir og innifalið er beint flug og hótel í tvær nætur, ferðir til og frá flugvelli og á leikvanginn og fararstjórn. Verðið er frá 175.000 kr. Í öllum tilvikum er flogið frá Íslandi daginn fyrir leik og komið til baka daginn eftir leik samkvæmt tilkynningu frá flugfélaginu.
Ferðirnar þrjár eru eftirfarandi:
Flug til Moskvu á leik Íslands og Argentínu. Brottför er frá Keflavíkurflugvelli kl. 15:00 föstudaginn 15. júní og komið heim síðdegis sunnudaginn 17. júní.
Flug til Volgograd á leik Íslands og Nígeríu. Brottför er frá Keflavíkurflugvelli kl. 15:00 fimmtudaginn 21. júní og komið heim síðdegis laugardaginn 23. júní.
Flug til Rostov á leik Íslands og Króatíu. Brottför er frá Keflavíkurflugvelli kl. 15:00 mánudaginn 25. júní og komið heim síðdegis miðvikudaginn 27. júní.
Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Icelandair.