Samfélagsmiðlar

Þrír koma til greina í stöðu ferðamálastjóra

Búist er við að ráðherra ferðamála skipi í stöðuna í lok næstu viku.

Þórdísar Kolbrúnar bíður nú það verk að skipa nýjan ferðamálastjóra.

Hæfnisnefndin sem lagði mat á þá tuttugu og þrjá sem sóttust eftir því að taka við embætti ferðamálastjóra hefur skilað skýrslu til Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ráðherra ferðamála. Þar eru þrír umsækjendur metnir best til þess fallnir að gegna embætti ferðamálastjóra og að öllu óbreyttu er búist við að skipað veðri í stöðuna í lok næstu viku. Þetta kemur fram í svari frá skrifstofu ferðamála, í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, við fyrirspurn Túrista.

Skipunartími nýs ferðamálastjóra er fimm ár og hefst hann þann 1. janúar nk. Búast má við því að verkefni nýs ferðamálastjóra muni breytast á  ráðningatímabilinu því í starfsauglýsingunni sagði að fyrirséð væri að skipan ferðamála myndi taki breytingum á næstu misserum. „Við þá vinnu og framtíðarþróun umhverfis og aðbúnaðar greinarinnar mun ferðamálastjóri gegna mikilvægu hlutverki,” sagði jafnframt í auglýsingunni. Ólöf Ýrr Atladóttir sem verið hefur ferðamálastjóri frá því í ársbyrjun 2008 sótti ekki um starfið að nýju.

Samkvæmt nýlegum úrskurði kjararáðs þá fær ferðamálastjóri 925 þúsund krónur í mánaðarlaun auk 30 eininga á mánuði fyrir yfirvinnu.

 

Nýtt efni

Fréttaveitan Bloomberg sagði frá því á dögunum að mikil úlfúð ríkti í alþjóðlegu kolefnisvottunarsamtökunum Science Based Targets initiatives, eða SBTi.  Fyrirtæki um allar koppagrundir hafa lengi reitt sig á vottanir frá SBTi þegar þau hafa fullyrt að þau stefni að kolefnishlutleysi.  Yfirleitt er kannski lítil ástæða til þess að fólk kippi sér upp við slæman starfsanda og …

Þegar lent er á flugvelli á ESB-svæðinu bíður farþeganna ekki verslun með tollfrjálsan varning við töskubeltin. Þess háttar er aðeins í boði fyrir brottför. Í Evrópuríkjum utan ESB gefst hins vegar tækifæri til að kaupa ódýrara áfengi við komuna eins og við þekkjum frá Keflavíkurflugvelli. Þeir sem nýta tollinn sinn þar til að kaupa léttvín …

Þrjár þotur Loftleiða munu næstu misseri fljúga viðskiptavinum erlendra ferðaskrifstofa hringinn í kringum heiminn. Um borð eru sætin stærri og færri en í hefðbundnu áætlunarflugi enda kostar ferðalagið skildinginn. Hver farþegi borgar 25 milljónir fyrir ferðalag líkt og farið var yfir í fréttum Stöðvar 2.  Það er ekkert nýtt að Icelandair leigi þotu og áhöfn í …

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …