Samfélagsmiðlar

10 fá stuðning til að framkvæma góða hugmynd sem tengist ferðageiranum

113 umsóknir bárust í Startup Tourism sem er viðskiptahraðall á sviði ferðaþjónustu.

Hluti af þeim verkefnum sem þróuð verða áfram í tengslum við Startup Tourism.

Markmið Startup Tourism er að hvetja til nýsköpunar á sviði ferðaþjónustu, styrkja stoðir nýrra fyrirtækja, fjölga afþreyingarmöguleikum og stuðla að dreifingu ferðamanna víðsvegar um landið, allan ársins hring.  Árlega er óskað eftir ferskum hugmyndum að afþreyingu eða nýjum lausnum og að þessu sinni bárust 113 umsóknir sem er aukning um fimmtung frá því í fyrra. Úr þessum hópi voru 25 umsækjendur teknir í viðtöl og hafa tíu nú verið valdir til þátttöku.

Í tilkynningu frá Startup Tourism segir að fulltrúar dómnefndar hafi verið sammála um að mikil gæði og sterkur bakgrunnur hafi einkennt umsóknirnar í ár og var valið því ekki auðvelt. Aðstandendur þeirra tíu verkefna sem valini voru fá aðgang að fullbúnu skrifstofurými í nýju húsnæði Íslenska ferðaklasans að Fiskislóð 10 meðan á verkefninu stendur. Auk þess gefst fyrirtækjunum kostur á að njóta fræðslu og þjálfunar og þróa áfram viðskiptahugmyndir sínar undir leiðsögn reyndra frumkvöðla, fjárfesta, lykilaðila á sviði ferðaþjónustu og annarra sérfræðinga og stjórnenda, þeim að kostnaðarlausu.

Eftirtaldin tíu fyrirtæki taka þátt í Startup Tourism árið 2018:

  1. Arctic Surfers
    Sérhæfð ferðaþjónusta fyrir brim-, róðra- og snjóbrettaiðkendur í ævintýraleit

  2. Havarí
    Gisting og viðburðir á lífrænu býli í Berufirði

  3. Igloo Camp
    Einstök tjaldhótel í stórbrotinni náttúru

  4. Kaffi Kú og The Secret Circle
    Ferðaþjónusta og upplifun í Eyjafjarðarsveit

  5. Propose Iceland
    Viðburðaþjónusta fyrir ferðamenn á biðilsbuxum

  6. Pure Magic
    Leikhúsupplifun byggð á íslenskum sagnaarfi

  7. basicRM
    Sjálfvirkni í verðlagningu fyrir ferðaþjónustu

  8. Stórsaga
    Víkingaheimur í Mosfellsdal

  9. Under the Turf
    Þjóðleg upplifun í gömlum torfbæ í Borgarnesi

  10. When in Iceland
    Veflausn sem tengir erlenda ferðamenn við einstaklinga sem vilja bjóða uppá afþreyingatengda ferðaþjónustu

    Bakhjarlar Startup Tourism eru Isavia, Íslandsbanki, Bláa Lónið og Vodafone, en Icelandic Startups og Íslenski ferðaklasinn sjá um framkvæmd verkefnisins.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …