Samfélagsmiðlar

Fáar ferðir til Vínar í sumar

Flugsamgöngurnar milli Íslands og Austurríkis hafa ekki verið ýkja miklar og þær munu versna í sumar. Austurríkismenn eru nokkru fámennari ferðammannahópur hér á landi en grannar þeirra í Sviss.

Austurríkismaður sem horfir til Íslands hefur úr fáum beinum flugferðum að velja til landsins.

Síðustu sumur hafa FlyNiki og leiguflugfélagið Austrian Holidays boðið upp á næturflug frá Keflavíkurflugvelli til Vínarborgar. Starfsemi þess fyrrnefnda var nýverið lögð niður og eftir stendur þá Austrian Holidays en þrátt fyrir sitja eitt að flugleiðinni þá segir talsmaður fyrirtækisins, í svari við fyrirspurn Túrista , að ekki standi til að bæta í Íslandsflugið í ár. Áfram mun austurríska leiguflugfélagið því bjóða upp á þrjár ferðir í viku og fara vélarnar í loftið í kringum miðnætti. Í dag kosta ódýrustu farmiðarnir, báðar leiðir, um 50 þúsund krónur með Austrian Holidays.

Vínarborg hefur hingað til ekki verið hluti að leiðakerfi íslensku flugfélaganna og ein ástæðan fyrir því kann að vera sú að flugtíminn frá Keflavíkurflugvelli er rétt rúmlega fjórir klukkutímar. Það er í lengri kantinum fyrir íslensku flugfélögin sem nota sömu þotur í Evrópuflug og ferðir vestur um haf innan sama dags. En þó forsvarsmenn Icelandair og WOW air gefi austurrísku höfuðborginni ekki tækifæri þá gætu samgöngurnar þangað batnað fyrr en síðar því nú eru lággjaldaflugfélögin easyJet og Wizz Air að koma sér fyrir á Vínarflugvelli en bæði standa þau fyrir áætlunarferðum til Íslands frá nokkrum evrópskum flugvöllum. Vínarborg gæti því bæst við Íslandsáætlun félaganna áður en langt um líður. Þess má geta að fyrstu vikur hvers árs flýgur WOW air til Salzburg.

Flugferðirnar héðan til nágranna Austurríkismanna í Sviss eru miklu meiri. Þannig flýgur Icelandair til Zurich allt árið og til Genfar frá vori til hausts líkt og easyJet gerir. Síðarnefnda félagið býður líka upp á áætlunarflug til Basel frá febrúar og fram í lok október ár hvert. Síðastliðið sumar komu hingað rétt um 16 þúsund Svisslendingar en tæplega 10 þúsund Austurríkismenn samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Þjóðirnar tvær eru hins vegar nánast jafn fjölmennar og því má gefa sér að íslensk ferðaþjónustu eigi töluvert inni í Austurríki en núna þegar flugferðunum mun fækka um helming þá er ekki við því að búast að túristum frá Austurríki fjölgi hér í ár.

En þó beint flug sé af skornum skammti þá er einfalt að finna flug milli Íslands og Austurríkis með millilendingu á meginlandi Evrópu eða í Bretlandi. Leitarvél Momondo er góð í að finna þess háttar kosti. Íslenskar ferðaskrifstofur bjóða líka af og til upp á pakkaferðir til Vínarborgar.

Nýtt efni

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …