Síðustu sumur hafa FlyNiki og leiguflugfélagið Austrian Holidays boðið upp á næturflug frá Keflavíkurflugvelli til Vínarborgar. Starfsemi þess fyrrnefnda var nýverið lögð niður og eftir stendur þá Austrian Holidays en þrátt fyrir sitja eitt að flugleiðinni þá segir talsmaður fyrirtækisins, í svari við fyrirspurn Túrista , að ekki standi til að bæta í Íslandsflugið í ár. Áfram mun austurríska leiguflugfélagið því bjóða upp á þrjár ferðir í viku og fara vélarnar í loftið í kringum miðnætti. Í dag kosta ódýrustu farmiðarnir, báðar leiðir, um 50 þúsund krónur með Austrian Holidays.
Vínarborg hefur hingað til ekki verið hluti að leiðakerfi íslensku flugfélaganna og ein ástæðan fyrir því kann að vera sú að flugtíminn frá Keflavíkurflugvelli er rétt rúmlega fjórir klukkutímar. Það er í lengri kantinum fyrir íslensku flugfélögin sem nota sömu þotur í Evrópuflug og ferðir vestur um haf innan sama dags. En þó forsvarsmenn Icelandair og WOW air gefi austurrísku höfuðborginni ekki tækifæri þá gætu samgöngurnar þangað batnað fyrr en síðar því nú eru lággjaldaflugfélögin easyJet og Wizz Air að koma sér fyrir á Vínarflugvelli en bæði standa þau fyrir áætlunarferðum til Íslands frá nokkrum evrópskum flugvöllum. Vínarborg gæti því bæst við Íslandsáætlun félaganna áður en langt um líður. Þess má geta að fyrstu vikur hvers árs flýgur WOW air til Salzburg.
Flugferðirnar héðan til nágranna Austurríkismanna í Sviss eru miklu meiri. Þannig flýgur Icelandair til Zurich allt árið og til Genfar frá vori til hausts líkt og easyJet gerir. Síðarnefnda félagið býður líka upp á áætlunarflug til Basel frá febrúar og fram í lok október ár hvert. Síðastliðið sumar komu hingað rétt um 16 þúsund Svisslendingar en tæplega 10 þúsund Austurríkismenn samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Þjóðirnar tvær eru hins vegar nánast jafn fjölmennar og því má gefa sér að íslensk ferðaþjónustu eigi töluvert inni í Austurríki en núna þegar flugferðunum mun fækka um helming þá er ekki við því að búast að túristum frá Austurríki fjölgi hér í ár.
En þó beint flug sé af skornum skammti þá er einfalt að finna flug milli Íslands og Austurríkis með millilendingu á meginlandi Evrópu eða í Bretlandi. Leitarvél Momondo er góð í að finna þess háttar kosti. Íslenskar ferðaskrifstofur bjóða líka af og til upp á pakkaferðir til Vínarborgar.