Það voru stjórnendur Kynnisferða og Hópbíla sem buðu hæst í útboði á aðstöðu fyrir sætaferðir frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar og fá fyrirtækin tvö því aðgang að sex rútustæðum við komusal flugstöðvarinnar frá og með 1. mars nk. Á sama tíma færast hópferðabílar Gray Line yfir á rútustæðið sem er handa við skammtímabílastæðið en í fyrrnefndu útboði buðust forsvarsmenn Gray Line til að greiða um fjórðung af veltu Airport Express til Isavia. Það var nokkuð undir hinum tilboðunum tveimur því forsvarsmenn Kynnisferða buðu Isavia 41,2% af veltu Flugrútunnar, fyrir áframhaldandi veru í og við flugstöðina, á meðan Hópbílar munu greiða þriðjung af sinni veltu.
Í útboðinu var einnig gerð krafa um lágmarksgreiðslu á hverju ári og hvernig sem gengur þá munu Kynnisferðir þurfa að greiða árlega nærri 158 milljónir til Isavia og greiðsla frá Hópbílum verður aldrei minni en 127 milljónir á ári. Þetta eru umtalsvert hærri álögur en hafa verið á sætaferðunum hingað til og í kjölfar útboðsins sagði þáverandi forstjóri Kynnisferða, í viðtali við Túrista, að óumflýjanlegt væri að farmiðar Flugrútunnar myndu hækka.
Það gekk eftir í haust þegar fargjald Flugrútunnar hækkaði um 200 krónur í 2.700 kr. Og miðað við verðskrá á heimasíðu Airport Direct, sem mun sjá um sætaferðirnar fyrir Hópbíla, þá mun miðinn þar kosta 2.990 krónur. Það er sama verð og fyrirtækið rukkar í dag fyrir skutl frá Keflavíkurflugvelli og að hóteli. Þess háttar þjónusta hjá Airport Direct mun hins vegar hækka í 3.990 krónur þegar fyrirtækið fær aðgang að stæðunum við Leifsstöð um þarnæstu mánaðarmót. Nemur hækkunin þriðjungi sem er nákvæmlega sama hlutfall og fyrirtækið mun greiða til Isavia af öllum akstri frá flugstöðinni. Túristi hefur ítrekað óskað eftir upplýsingum um verðstefnu Airport Direct og Hópbíla og eins upplýsingum um hvaðan á höfuðborgarsvæðinu rútur fyrirtækisins munu keyra en engin svör hafa fengist.
Þrátt fyrir að Gray Line missi aðstöðuna beint fyrir framan komusal Leifsstöðvar þá hafa forsvarsmenn fyrirtækisins boðað áframhaldandi sætaferðir undir merkjum Airport Express. Þar kostar stakur farmiði 2.400 krónur og mun verðið haldast óbreytt samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Þrátt fyrir að þann 1. mars verða sett á ný bílastæðagjöld á hinu almenna rútustæði og mun þá kosta 19.900 krónur að keyra hefðbundinn hópferðabíl inn á stæðið. Forsvarsmenn Gray Line hafa kært þá verðlagningu til Samkeppniseftirlitsins og bent á að þessi verðlagning sé margfalt hærri en tíðkast í löndunum í kringum okkur.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem Túristi hefur fengið frá Swedavia, hinu opinbera fyrirtæki sem rekur stærstu flugvellina í Svíþjóð, þá tíðkast það ekki að rukka hópferðabíla fyrir aðstöðu við flugstöðvar. Á Óslóarflugvelli er gjaldið um 1000 íslenskar krónur og þar fá allar rútur 15 mínútur til að sækja farþega sína og þá beint fyrir framan inngang flugstöðvarinnar. Hins vegar er mun dýrara að leggja einkabílum á langtímabílastæði við norrænu flughafnirnar en við Keflavíkurflugvöll. Verðlagningin er því öfug hér á landi og á sama tíma eru rútuferðirnar dýrari sem er líklega ein helsta skýringin á því að hlutfall íslenskra farþega í flugrútunum er mjög lágt samkvæmt því sem Túristi kemst næst.
Auk rútufyrirtækjanna þá býður Strætó upp á reglulegar ferðir til og frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar en áætlunin hentar t.a.m. ekki fyrir þá sem eru á leið í morgunflug frá landinu.