Það tekur vanalega nokkurn tíma að koma sér út á flugstöð og svo tekur við innritun og vopnaleit. Þegar loksins er komið í brottfararsalinn eru garnirnar sennilega farnar að gaula í mörgum. Og þar sem flugvélamaturinn er sjaldan innifalinn í fargjaldinu þá er alveg eins gott að kaupa sér eitthvað í svanginn fyrir flugtak.
Úrvalið af góðum mat í flugstöðvum er hins vegar misgott og verðlagið ekki alltaf hagstætt en samkvæmt úttekt vefsíðunnar Reward Expert eru svangir flugfarþegar best settir á Narita flugvelli í Tókýó. Þar á eftir koma þrír asískir flugvellir og Schiphol í Amsterdam er í því fimmta. Úttektin náði aðeins til fjölförnustu flughöfnum heims en á listanum eru nokkrir flugvellir sem tengjast leiðakerfi Keflavíkurflugvallar eins og sjá má. Innan sviga eru heiti þeirra veitingastaða sem Reward Expert mælir sérstaklega með í þessum flugstöðvum sem íslenskir farþegar reglulega um.
Flugstöðvarnar með besta matarúrvalið
- Narita International í Tókýó
- Taoyuan í Tævan
- Hong Kong International
- Changi í Seoul
- Amsterdam Schiphol (Bowery Restaurant)
- London Gatwick (Comptoir Libanais í North Terminal)
- Kingsford – Smith í Sydney
- Barajas í Madríd (Vinea í terminal 4)
- Munchen flugvöllur (Airbrau)
- London Heathrow (Gordon Ramsey´s Plane Food í terminal 5)
- Frankfurt flugvöllur (Paulanier in the Squaire í AiRail terminal)
- Pierson í Toronto (Fetta)
- Charles De Gaulle í París (I love Paris by Guy Martin í terminal 2E)
- El Prat í Barcelona (Porta Gaig í terminal 1)
- Leonardo di Vinci-Fuimicino í Róm