Samfélagsmiðlar

Helga Árnadóttir til liðs við Bláa Lónið

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar færir sig yfir til Bláa lónsins en forstjóri þess er núverandi formaður samtakanna.

Helga Árnadóttir.

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, hefur verið ráðin til Bláa Lónsins og hefur störf 1. júní næstkomandi. Helga mun verða framkvæmdastjóri Blue Lagoon Journeys ehf, dótturfélags Bláa Lónsins, sem vinnur að þróunarverkefnum félagsins á sviði ferðaþjónustu. Þessi ráðning styður auknar áherslur Bláa Lónsins á þeim vettvangi samkvæmt því sem segir í fréttatilkynningu.

„Verkefni tengd frekari þróun og nýsköpun Bláa Lónsins eru spennandi og er gaman að fá að takast á við þau með öflugu starfsfólki og forstjóra, sem ég hef átt mjög gott og farsælt samstarf við á síðustu árum á vettvangi SAF.  Fyrirtækið er leiðandi í ferðaþjónustu á Íslandi og er það von mín að kraftar mínir og reynsla muni nýtast vel í þeim fjölmörgu þróunarverkefnum sem framundan eru,“ segir Helga en Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa lónsins hefur verið formaður Samtaka ferðaþjónustunnar frá því apríl árið 2014.

„Umhverfi ferðaþjónustunnar er nú að taka byltingarkenndum breytingum ekki síst vegna stafrænnar þróunar og það er afar ánægjulegt að hafa fengið Helgu til liðs við Bláa Lónið til að leiða mjög áhugaverð verkefni á þeim vettvangi. Ég hef starfað með Helgu undanfarin 4 ár sem formaður SAF þar sem hún hefur unnið frábært starf.  Bláa Lónið er í miklum vexti. Hjá okkur starfa nú rúmlega 700 manns en á næstu vikum opnum við nýtt upplifunarsvæði og hótel við Bláa Lónið.  Starfsemi félagsins er í stöðugri þróun og mörg spennandi verkefni sem við vinnum nú að.  Það er því mikill akkur af því að fá Helgu til liðs við okkur í þessi mikilvægu verkefni,“ segir Grímur í tilkynningu.

 

 

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …