Það fóru um 8,8 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll Í fyrra og fjölgaði þeim um 28 prósent sem er meiri vöxtur en á öðrum álíka stórum flughöfnum í Evrópu. Og þegar litið er aftur til ársins 2012 kemur í ljós að Keflavíkurflugvöllur er í algjörum sérflokki í Evrópu því þar hefur farþegafjöldinn nærri fjórfaldast sem er langtum meira en annars staðar.
Vöxturinn í ferðalögum er ekki aðeins bundinn við Ísland því nýliðið ár var metár á evrópskum flugvöllum og fjölgaði farþegunum um 8,5 prósent. Leita þarf 13 ár aftur í tímann til að finna meiri hlutfallslegan vöxt samkvæmt uppgjöri Evrópusamtaka flughafna, ACI Europe. Þar segir jafnframt að aukningin hafi verið mest í austur- og suðurhluta álfunnar. Helsta skýringin á því er sú að farþegaflug í Tyrklandi og Rússlandi hefur verið að rétta úr kútnum eftir niðursveiflu síðustu ára. Einnig hefur það áhrif að íbúar Austur-Evrópu kjósa nú flugsamgöngur í álíka miklum mæli og íbúar í vesturhluta álfunnar.
Mesta aukningin á flugvöllum með 5 til 10 milljónir farþega – árið 2017
- Keflavíkurflugvöllur: 28,3%
- Napólí: 26,6%
- Kænugarður: 22,1%
- Malta: 17,5%
- Larnaca: 16,5%