Tómas Ingason er nýr framkvæmdastjóri viðskiptasviðs WOW air en undir það heyra sala, markaðssetning, þjónusta og tekjustýring flugfélagsins. Engilbert Hafsteinsson sem verið hefur framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs flugfélagsins hefur látið af störfum en þangað réði hann sig í ágúst 2013. Hálfu ári síðar hóf Tómas störf hjá WOW en stoppaði stutt og þetta er því í annað sinn sem hann kemur til starfa hjá lággjaldaflugfélaginu.
Á árunum 2011 til 2013 starfaði Tómas sem stjórnunarráðgjafi hjá Bain & Company í Kaupmannahöfn en áður leiddi hann tekjustýringu og verðlagningu hjá Icelandair samkvæmt því sem segir í tilkynningu frá WOW air. Þar er haft eftir Skúli Mogensen, forstjóra og stofnanda WOW air, að reynsla Tómasar muni nýtast WOW air í hröðum vexti fyrirtækisins. Skúli þakkar Engilbert jafnframt fyrir sín störf. „Engilbert hefur verið lykilstarfsmaður í uppbyggingu félagsins og leiddi meðal annars alla vöruþróun tegnda sölu og innleiddi hliðartekjur WOW air.“