Sjö eru í framboði til stjórnar Icelandair Group en fimm manna stjórn félagsins verður kjörin á aðalfundi fyrirtækisins á fimmtudag. Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga, sem tók sæti í stjórninni í fyrra sækist ekki eftir endurkjöri samkvæmt lista yfir frambjóðendur sem birtist í tilkynningu frá Icelandair Group.
Þar eru hins vegar nöfn Ásthildar Margrétar Otharsdóttur, Katrínar Olgu Jóhannesdóttur, Ómar Benediktssonar og Úlfars Steindórssonar stjórnarformanns en þessi fjögur eiga í dag öll sæti í stjórn Icelandair. Heiðrún Jónsdóttir, Helga Viðarsdóttir og Guðmundur Hafsteinsson bjóða sig jafnframt fram til stjórnar Icelandair Group en fyrirtækið er umsvifamesta ferðaþjónustufyrirtæki landsins.