Samfélagsmiðlar

Vill sjá íslenskt og kínverskt flugfélag fljúga á milli landanna

Sendiherra Kína á Íslandi telur að Ísland verði áfram vinsæll áfangastaður kínverskra ferðamanna og að beint flug frá Kína myndi ekki aðeins koma íslenskri ferðaþjónustu til góða. Íslensku flugfélögin eiga hins vegar ennþá eftir að semja við Rússa um leyfi til að fljúga yfir Rússland á leiðinni til Asíu.

Íslenskum túristum á Kínamúrnum myndi líklega fjölga verulega ef í boði væri að fljúga beint héðan til Kína.

„Við ættum að ýta undir ferðalög fólks. Vissulega er langt á milli Íslands og Kína, en núna er hægt að koma á mjög góðum samgöngum og tengja lönd okkar saman,“ segir Jin Zhijian, sendiherra Kína á Íslandi, í viðtali við Morgunblaðið í dag. Hann bendir á að millistéttin í Kína telji um 400 milljónir manna og þessi hópur sé menntaður og vilji ferðast. „Mín skoðun er sú að Ísland hefur nú þegar orðið og mun áfram vera einn af vinsælustu áfangastöðum margra ferðamanna frá Kína, sérstaklega þeirra sem yngri eru. Við þurfum því að búa okkur undir komu fleiri gesta hingað,“ bætir sendiherrann við en líkt og Túristi greindi frá í síðustu viku þá munu spár kínverskra stjórnvalda gera ráð fyrir því að fjöldi kínverskra ferðamanna ríflega þrefaldist á næstu 2 árum.

Áætlunarflug milli landanna tveggja er líklega forsendan fyrir því að koma að jafnaði 820 kínverskum ferðamönnum til Íslands á degi hverjum. Og í Morgunblaðinu er sendiherrann spurður hvort ekki sé brýnt að komu á beinu flugi milli Keflavíkur og Kína. „Það er mjög mikilvægt. Þetta er eitt af þeim atriðum sem ég hef lengi hugsað um og meðal annars talað fyrir þessum samgöngum við hina ýmsu stjórnmála- og embættismenn. Ég tel að það sé vel hægt að opna beina flugleið á milli Kína og Íslands vegna þess að það bætist sífellt í hóp þeirra sem vilja ferðast þessa leið. Aukin viðskipti á milli landanna eru einnig önnur ástæða,“ segir Zhijian.

„Ég vil sjá minnst eitt kínverskt og eitt íslenskt flugfélag fljúga á milli landanna,“ segir sendiherrann að lokum og þau ummæli eru líka áhugaverð fyrir þær sakir að kínversk stjórnvöld hafa sterk ítök í stærstu flugfélögum Kínverja. Þannig fer kínverska ríkið með meira en helmings eignarhlut í Air China, stærsta flugfélaginu í Kína, en það félag hefur áætlunarflug milli Peking og Kaupmannahafnar í ár. En kínversk flugfélög sjá greinilega tækifæri á Norðurlöndunum því í júní fer Beijing Capital Airlines jómfrúarferð sína frá Peking til Helsinki og munu þotur félagsins fljúga þrjár ferðir í viku. China Eastern Airlines mun svo fljúga fjórum sinnum í viku milli Sjanghæ og Stokkhólms frá og með sumrinu en kínverska ríkið ríflega helmingshlut í því flugfélagi.

Eins og áður hefur komið fram þá er samningur um yfirflug við rússnesk stjórnvöld forsenda fyrir því að íslensk flugfélög geti hafið áætlunarflug til Asíu. Unnið hefur verið að þess háttar samningi síðustu misseri. Og samkvæmt heimildum Túrista þá eru líkur á því að Rússar setji það sem skilyrði að íslensku flugfélögin hefji áætlunarflug til Rússlands á sama tíma og þau fá leyfi fyrir yfirfluginu til Asíu.

Nýtt efni

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …