Samfélagsmiðlar

Helmingur erlendra sumarferðamanna heimsækir Norðurland

Á meðan ferðamenn fara víða um land yfir sumarið þá er verk að vinna til að ná sambærilegum árangri yfir vetrarmánuðina.

Á árinu 2017 má áætla að um 573 þúsund erlendir ferðamenn hafi komið á Norðurland, eða 29% af heildarfjölda erlendra ferðamanna sem komu til Íslands á árinu. Næturgestir voru 456 þúsund, sem gistu að meðaltali í rúmlega þrjár nætur. Samtals voru seldar gistinætur á síðasta ári 1.413 þúsund, sem er um 11% af heildarfjölda gistinótta erlendra ferðamanna. Þó nokkur munur er á fjölda þeirra sem kemur að sumri til annars vegar og vetri til hins vegar. Þetta kemur fram niðurstöðum rannsóknar sem fyrirtækið Rannsóknir og ráðgjöf ferðaþjónustunnar ehf vann fyrir Markaðsstofu Norðurlands nú í apríl.

Mikilvægt að markaðssetja vetrarferðaþjónustu

„Áhugavert er að sjá að rétt tæplega helmingur erlendra sumargesta á Íslandi komu á Norðurland en aðeins um 17% vetrargesta. Þetta er í takt við þær niðurstöður sem við höfum fengið á undanförnum árum og sýnir enn og aftur mikilvægi þess að markaðssetja vetrarferðaþjónustu um allt land og að bæta samgöngur svo erlendir ferðamenn skili sér til Norðurlands allt árið. Mikil þróun hefur átt sér stað síðastliðin ár í vetrarferðaþjónustu á Norðurlandi. Búið er að byggja upp gott úrval gisti- og veitingastaða, afþreying er fjölbreytt og samstarf svæða mikið,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

Hún bendir á að munurinn á sumri og vetri sé enn nokkuð mikill og áfram verði að vinna í að minnka hann. „Þessi þróun, ásamt gríðarlega sterkum seglum á svæðinu, skapar tækifæri fyrir ferðaþjónustuna til að verða heilsárs atvinnugrein en til þess að hægt sé að nýta tækifærin af fullum krafti er lykilatriði að samgöngur verði bættar, bæði á milli svæða og ekki síður að náttúruperlum okkar. Líta þarf til þess að árstíðarsveiflan á okkar svæði er enn allt of mikil og því full nauðsyn á að klára þau verkefni sem þarf til að breyta þessari mynd en þau koma skýrt fram í öllum greiningum og stefnum sem gerðar eru á Norðurlandi. Á næstu vikum kemur út Áfangastaðaáætlun DMP fyrir Norðurland og má þar finna fjölmörg verkefni sem ferðaþjónustan og sveitarfélög á svæðinu kalla eftir að verði unnin.“ segir Arnheiður.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …