Verð á þjónustu hefur hækkað mikið á síðustu þremur árum með sterkari krónu og launahækkunum og er nú svo komið að rík ástæða er til að hafa áhyggjur af þróuninni enda hefur verðlag bein áhrif á eftirspurn. Þetta kom fram í máli Bjarnheiðar Hallsdóttur á Morgunvakt Rás 1. Hún sagði Mið-Evrópubúa þá gesti sem í gegnum árin hefðu gefið okkur mest enda dveldu þeir lengi í landinu, þekktu það vel og færu víða um. Ferðahegðun Bandaríkjamanna og Asíubúa, sem fjölgað hefði að undanförnu, væri öðru vísi og ekki jafn ábatasöm.
Bjarnheiðar sagði það skoðun sína að ekki beri að skattleggja ferðamenn meira en þegar er gert og nefndi að árið 2015 voru nettótekjur ríkis og sveitarfélaga vegna ferðamanna um 65 milljarðar króna. Þá er hún mótfallin hugmyndum um náttúrupassa og gjaldtöku við náttúruperlur. En eins og áður hefur komið fram þá gerir fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar ráð fyrir að nýr skattur á ferðamenn skili ríkinu 2,5 milljörðum á þarnæsta ári. Ekki liggur hins vegar fyrir hvers kyns skattur þetta verður.