Landvernd fékk 17,9 milljónir frá WOW

Farþegar WOW air og flugfélagið sjálft styrkja starf Landverndar og munu gera áfram næstkomandi ár.

Aftari röð til vinstri: Margrét Auðunsdóttir stjórnarkona í Landvernd, Lovísa Ásbjörnsdóttir starfandi formaður Landverndar, Skúli Mogensen forstjóri WOW air, Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir starfsmaður Landverndar, Salome Hallfreðsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar og Guðmundur Björnsson stjórnarmaður í Landvernd. Fremri röð frá vinstri: Hugrún Geirsdóttir stjórnarkona í Landvernd, Guðrún Vaka Helgadóttir ritstjóri WOW magazine, Bergljót Björk aðstoðarkona forstjóra WOW air, Margrét Hugadóttir starfsmaður Landverndar Mynd: WOW air

Nú er eitt ár liðið frá því að WOW air hóf myntsöfnun um borð í vélum sínum fyrir hönd farþega. Sérstakt umslag hefur verið í sætisvösum allra WOW air flugvéla og hafa farþegar verið hvattir til þess að gefa afgangsmynt til Landverndar. Í dag afhenti flugfélagið svo Landvernd afraksturinn og nam hann rétt tæpum níu milljónum og mótframlag WOW var jafn hátt. Í heildina nam styrkurinn því um 18 milljónum. Við afhendingu upphæðarinnar var nýr samstarfssamningur til eins árs undirritaður milli WOW og Landverndar samkvæmt því sem kemur fram í tilkynningu.

„Við getum verið mjög stolt af árangri þessarar söfnunar og það er frábært að sjá hvað farþegar okkar hafa tekið henni vel. Málefnið er göfugt og við munum halda áfram að styðja við uppbyggingu og verndun íslenskrar náttúru,“ segir Skúli Mogensen framkvæmdastjóri og eigandi WOW air.

Landvernd eru frjáls félagasamtök sem starfa að umhverfismálum og leggja áherslu á að taka virkan þátt í ákvarðanatöku, fræðslu og stefnumótun er varða íslenska náttúru og sjálfbæra nýtingu hennar. „Við hjá Landvernd eru afskaplega ánægð og þakklát fyrir stuðning flugfarþega og mótframlag WOW air. Afraksturinn fór fram úr okkar björtustu vonum, en endurspeglar ef til vill hrifningu ferðamanna á náttúru landsins og þörfina að vernda hana. Þessi stuðningur skiptir samtökin miklu máli og verður nýttur í mikilvæg verkefni eins og t.d. stofnun hálendisþjóðgarðs, endurheimt birkiskóga og votlendis. Svo má nefna að á næsta ári eiga samtökin 50 ára afmæli og ætlum við að minnast þess með ýmsum viðburðum á afmælisárinu,“ segir Lovísa Ásbjörnsdóttir, starfandi formaður Landverndar, í tilkynningu.