Samtarf um alþjóðlegar ráðstefnur tengdar háskólunum

Setja aukinn kraft í samstarf um að fá til höfuðborgarinnar fleiri akademíska fundi og ráðstefnur. Algengt er að þeir sem ferðast hingað vegna fundarhalda framlengi dvölinni.

Rektorar háskólanna þriggja Ari Kristinn Jónsson rektor HR, Jón Atli Benediktsson rektor HÍ og Fríða Björk Ingvarsdóttir rektor LHÍ undirrituðu samkomulagið ásamt Þorsteini Erni Guðmundssyni framkvæmdastjóra Meet in Reykjavík og Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. Mynd: Meet in Reyjavik

Samkomulag Ráðstefnuborgarinnar Reykjavík, Meet in Reykjavík, við rektora Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Listaháskóla Íslands var undirrituð í vikunni. Markmiðið með samstarfinu er að fjölga alþjóðlegum akademískum fundum og ráðstefnum á vegum háskólanna hér á landi.

Meet in Reykjavík mun aðstoða starfsfólk háskólanna og samstarfsaðila þeirra við undirbúning, upplýsingaöflun og tilboðsgerð fyrir alþjóðlega fundi og ráðstefnur sem tengjast háskólunum með einhverjum hætti. Kannanir hafa sýnt að ráðstefnugestir hér á landi dvelja að jafnaði um 6 daga á landi og í 8 af hverjum 10 tilfellum heimsækja þeir landið utan háannatíma í ferðaþjónustunni. Hin langi dvalartími helgast meðal annars af því að það mun vera nokkru algengara hér, en víða annars staðar, að þeir sem sækja ráðstefnu til Íslands framlengi dvölina hér á landi.

Í tilkynningu er haft eftir Þorsteini Erni Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Meet in Reykjavík, að samningurinn sé mikilvægt skref í að efla Reykjavík sem alþjólega ráðstefnuborg. „Við höfum átt ágætt samstarf við háskólanna undanfarin ár en nú viljum við setja aukinn kraft í samstarfið og fara í markvissari leit að verkefnum sem henta áfangastaðnum og háskólasamfélaginu hér á landi.“

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir öfluga funda og ráðstefnuferðaþjónustu styðja við markmið borgarinnar um fjölbreytt og öflugt atvinnulíf. „Við viljum byggja upp borgina sem háskólaborg og sem þekkingarsamfélag. Umhverfi þar sem fyrirtæki hafi góð tækifæri til að vaxa og dafna. Það má því segja að mörg markmið komi heim og saman í því samstarfi nú hefur verið undirritað.
Samkvæmt upplýsingum frá Meet in Reykjavik þá eru tekjur af hverjum ráðstefnugesti eu að jafnaði um tvöfalt hærri á hverja gistinótt en af hefðbundnum ferðamanni.