Samfélagsmiðlar

Sú nítjánda kom í dag

Tólfta Airbus A321 farþegaþotan bættist við flugflota WOW air í dag og þar með samastendur floti lággjaldaflugfélagsins af nítján þotum. Fimm í viðbót bætast við fyrir áramót.

Einar Valur Bárðarson flugstjóri, Már Þórarinsson tæknistjóri og Reynald Hinriksson flugmaður á flugvellinum í Hamborg í morgun áður en lagt var í fyrsta ferðina til Íslands.

Nýjasta vél WOW air lenti fyrr í dag á Keflavíkurflugvelli en um er að ræða glænýja Airbus A321ceo en var henni flogið yfir Reykjavík í hádeginu. Flugvélin kemur beint frá verksmiðju Airbus í Hamborg og verður strax notuð í áætlunarflug á morgun. Í tilkynningu frá WOW segir að þotan beri skráningarnúmerið TF-DOG. „Með heitinu heldur WOW air áfram að vísa til fjölskyldunnar enda er hundurinn jafnan sagður besti vinur mannsins og ómissandi á mörgum heimilum.“

Í vélinni eru 208 sæti og og þar af átta svokölluð „Big Seat“ sem eru breiðari sæti með meira sætabili.  Vélin kemur til með að fljúga innan Evrópu og til Bandaríkjanna. Þetta er nítjánda vél WOW air en fyrir lok árs 2018 mun floti WOW air samanstanda af 24 nýjum Airbus flugvélum.

„Við tökum spennt á móti þessari nýju viðbót í flota WOW air. Það er ánægjulegt að geta boðið farþegum okkar upp á nýjasta flugflotann á Íslandi og á sama tíma haldið áfram að lækka flugverð,“ segir Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri WOW air, í tilkynningu.

 

Nýtt efni

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …