Samfélagsmiðlar

Bæta í Íslandsflugið frá Basel

Vetraráætlun easyJet gerir ráð fyrir auknu flugi hingað til lands frá Sviss og útlit er fyrir að samgöngur milli landanna tveggja verði óvenju góðar í vetur.

basel vetur

Basel í vetrarbúningi.

Síðustu ár hefur easyJet gert hlé á áætlunarferðum sínum hingað frá svissnesku borginni Basel frá nóvember og fram í febrúar. Á því hefur verið gerð breyting því flugfélagið hefur nú á boðstólum tvær ferðir í viku hverri milli Keflavíkurflugvallar og Basel í allan vetur. Þar með opnast tækifæri fyrir þá sem vilja heimsækja svissnesku borgina í vetur eða nýta flugið til að koma sér yfir á skíðasvæðin sem finna má í 2 til 3 klukkutíma akstursfjarlægð frá borginni. Þeirra þekktast er sennilega Engelberg sem nýtur til að mynda mikilla vinsælda meðal sænskra skíðakappa.

Farmiðarnir með easyJet frá Íslandi til Basel í vetur eru í mörgum tilfellum mjög ódýrir og til að mynda er hægt að fljúga út föstudaginn 18. janúar og heim aftur á mánudeginum fyrir rétt um 6.700 krónur. Hins vegar kostar 10.800 krónur að taka með sér skíði í flugið og það er vissulega sérkennileg staða þegar borga þarf meira fyrir farangur en farþega.

Þegar easyJet hóf Íslandsflug frá Sviss fyrir fjórum árum síðan þá flaug félagið hingað heilan vetur frá bæði Basel og Genf. Það hafði veruleg áhrif á straum svissneskra ferðamanna hingað til lands því fjöldi þeirra þrefaldaðist fyrsta veturinn eins og sjá má á grafinu hér fyrir neðan. Þrátt fyrir það breytti easyJet áætlun sinni og nú takmarkast Genfarflugið við vor, sumar og haust og ekkert flug hefur verið í boði frá Basel yfir háveturinn þar til núna.

Á móti kemur að Icelandair flýgur nú allt árið til Zurich og verða ferðirnar félagsins til fjölmennustu borgar Sviss þrjár í viku í vetur. Það er því útlit fyrir að samgöngurnar milli Íslands og Sviss verði óvenju góðar næstkomandi vetur en kannanir hafa sýnt að Svisslendingar eru oftar en ekki sú þjóð sem greiðir mest með kreditkortum sínum hér á landi.

Nýtt efni

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …

Það seldust 183 þúsund Volvo bílar á fyrsta fjórðungi ársins sem var aukning um 12 prósent frá sama tíma í fyrra. Engu að síður dróst veltan saman um 2 prósent og rekstrarafkoman (Ebit) nam 4,7 milljörðum sænskra króna eða 61 milljarði kr. Það er töluvert undir spá greinenda sem höfðu að jafnaði gert ráð rekstrarhagnaði …

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …