Á fallegum sumardögum í Zurich þá kæla íbúarnir sig niður í ám og vötnum enda hafa borgarbúar passað vel upp á hreinleika vatnsins sem setur svo sterkan svip á þessa fjölmennustu borg Sviss. Íbúar Kaupmannahafnar eru kannski ekki alveg eins sólgnir í vatnið en borgaryfirvöld þar hafa hins vegar lagt mikla áherslu á alls kyns sjávarlaugar og sandstrendur í borginni síðastliðinn áratug og samkvæmt úttekt CNN þá státar engin stórborgir af öðru eins. Kaupmannahöfn toppar því lista CNN og þar á eftir kemur Zurich en á listanum eru 7 aðrar borgir sem flogið er til frá Íslandi eins og sjá má.
Bestu baðborgirnar
- Kaupmannahöfn – Icelandair, WOW air og SAS.
- Zurich – Icelandair flýgur til borgarinnar allt árið
- London – British Airways, easyJet, Icelandair, Norwegian, Wizz Air, WOW
- Hong Kong
- Vancouver – Icelandair
- Sydney
- Lissabon
- París – Icelandair, WOW og Transavia (yfir sumarið)
- New York – Delta, Icelandair, United Airlines, WOW air
- Berlín – Icelandair og WOW air
- Stokkhólmur – Icelandair, WOW air og Norwegian.
- Ríó