Samfélagsmiðlar

Greiðari leið að flugupplýsingum

Nú er hægt að fá upplýsingar um flug og þjónustu á Keflavíkurflugvelli í gegnum Twitter og Facebook Messenger.

Skjámynd af forsíðu nýju vefsíðu Isavia.

Allir farþegar sem fara í gegnum Keflavíkurflugvöll geta nú fengið upplýsingar um flugið sitt sent beint til sín á Twitter og Facebook Messenger. Þetta er meðal þeirrar þjónustu sem er í boði á nýjum vef Isavia sem tekinn var í notkun í apríl. Þar er öll upplýsingagjöf um flugvelli Isavia á einum stað. Við gerð vefsíðunnar var byggt á nýrri hugmyndafræði og hún skipulögð út frá þörfum notenda líkt og Gunnar K. Sigurðsson, markaðsstjóri Isavia, fór yfir með lesendum Túrista nýverið.

Með nýrri þjónustu frá írska fyrirtækinu BizTweet er gervigreind nýtt til að koma upplýsingum til notenda með þeim hætti sem þeir kjósa. Hægt að fá upplýsingar um flug og þjónustu á Keflavíkurflugvelli sendar í gegnum Twitter eða Messenger forrit Facebook. Helstu flugvellir heims eru farnir að nýta sér þessa þjónustu, þar á meðal alþjóðaflugvellirnir í Melbourne í Ástralíu og Dúbaí sem og London City-flugvöllur.
Farþegar geta þannig fengið upplýsingar um flug sitt í rauntíma á þeim samskiptamiðli sem þeir velja. Hvert skref í þeirra ferðalagi er tíundað þar til lent er á áfangastað. „Isavia vill veita farþegum greiðan aðgang að þeim upplýsingum sem þeir þurfa að fá þegar þeim hentar og með þeim hætti sem þeir vilja,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia í tilkynningu. „Til þess viljum við nýta nýjustu og bestu tækni. BizTweet hefur gert okkur þetta mögulegt.“

Paul Brugger, framkvæmdastjóri BizTweet segir það mikið ánægjuefni að veita Isavia þessa þjónustu. „Nýstárleg tækni BizTweet gefur flugvallarrekendum einstakt tækifæri til að veita skilaboð sem byggja á raungögnum. Þetta þýðir að viðskiptavinir Isavia, þ.e. farþegarnir, fá upplýsingar sem eiga beint erindi við þá.“

Vefir Isavia hefa verið mikið notaðir. Síðastliðið ár fóru um ein og hálf milljón netenda í 4,8 milljónir heimsókna á vef Keflavíkurflugvallar sem þýðir að hver notandi fer rúmlega þrisvar sinnum á ári að meðaltali inn á vefinn. Fjórar milljónir flettinga voru á ensku síðunni á ársgrundvelli en sjö milljónir flettinga á íslensku síðunni. Með aukinni þjónustu og greiðara aðgengi að upplýsingum um Keflavíkurflugvöll, alla aðra flugvelli landsins, komur og brottfarir og fjölbreytta þjónustu Isavia má ætla að umferð um nýjan vef fyrirtækisins verði jafnvel enn meiri.

Nýtt efni

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …

Fataverslunin Húrra Reykjavík opnar í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor og verður þar boðið upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir farþega á leið úr landi. „Við erum að stíga stór skref með opnun þessarar nýju og glæsilegu verslunar, sem á sér stað í tilefni af 10 ára afmæli fyrirtækisins. Þetta er …

MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …

Koffínlausar kaffibaunir eru hefðbundnar kaffibaunir þar sem beiskjuefnið og örvandi hlutinn koffín hefur verið fjarlægt. Útbreiddasta og ódýrasta ferlið við að losa baunirnar við koffínið er hins vegar orðið umdeilt þar sem efnasambönd sem við það eru notuð eru nú tengd við ýmsa heilsufarskvilla.Hægt er að beita nokkrum aðferðum við að losa kaffibaunir við koffín. …

Þrjátíu og átta trilljónir er tala sem er svolítið erfitt að skilja. Trilljón er notað í Bandaríkjunum yfir það sem við Íslendingar köllum billjón, og billjón er þúsund milljarðar, eða milljón milljónir. Á núverandi gengi eru 38 trilljónir Bandaríkjadala sama og 5.320 billjónir íslenskra króna, eða 5,3 milljón milljarðar.  Það er gott að hafa þetta …

Borgaryfirvöld í Lissabon hafa samþykkt að hækka gistináttagjald úr 2 í 4 evrur. Gjaldtaka nær ekki til tjaldstæða. Þá hefur komugjald á skipafarþega verið hækkað úr 1 í 2 evrur. Tillaga um að hækka það gjald í 4 evrur var felld.  Lusa-fréttastofan hefur eftir Carlos Moedas, borgarstjóra, að það sé „sanngjarnt fyrir borgina og íbúa …