Samfélagsmiðlar

Hefur trú á því að flugfélögunum verði stýrt yfir á beinu brautina

Hagnaður af rekstri Icelandair mun dragast töluvert saman í ár og tap var á rekstri WOW air í fyrra. Samgönguráðherra segir flugrekstur augljóslega vera erfiðari núna en undanfarin ár.

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra.

Samanlagt standa Icelandair og WOW air undir um 8 af hverjum 10 flugferðum frá Keflavíkurflugvelli. Mikilvægi fyrirtækjanna tveggja fyrir samgöngur til og frá landinu er því mikið og þar með fyrir ferðaþjónustuna sem er ein af undirstöðu atvinnugreinum þjóðarinnar. Staða flugfélaganna tveggja hefur hins vegar veikst síðustu misseri eins og fram kom í tilkynningum frá flugfélögunum í síðustu viku.

Þannig gera áætlanir forsvarsfólks Icelandair nú ráð fyrir nokkru minni hagnaði í ár en áður hafði verið spáð. Fyrir helgi birti WOW air svo loks afkomu sína fyrir síðasta ár og niðurstaðan var tap upp á rúma 2,3 milljarða. Það er mikill viðsnúningur frá árinu 2016 þegar hagnaðurinn nam nærri 4 milljörðum.

Aðspurður um þessa versnandi stöðu segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, að hann hafi trú á stjórnendum flugfélaganna. „Samhliða örum vexti ferðaþjónustunnar hefur vöxtur félaganna verið ævintýralegur. Rekstur þeirra er augljóslega erfiðari en á undanförnum árum meðal annars vegna hærri olíukostnaðar, launakostnaðar og annara áskorana sem fylgja örum vexti. Ég hef fulla trú á stjórnendum félaganna til þess að bregðast við breyttum aðstæðum og stýra félögunum yfir á beinu brautina.“

Samkvæmt svari frá samgönguráðuneytinu þá kallaði ráðuneytið fyrr á þessu ári eftir upplýsingum frá Samgöngustofu um framkvæmd á á fjárhagsmati á flugrekendum. En sú stofnun fer með eftirlit með rekstrarhæfi flugrekenda.

TENGDAR GREINAR: 10 SPURNINGAR SEM ER ÓSVARAÐ UM SNÚNA STÖÐU FLUGFÉLAGANNA

Nýtt efni

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í takt við væntingar okkar en rekstrarniðurstaðan í janúarmánuði litaðist af áhrifum alþjóðlegrar umfjöllunar um eldgos á Reykjanesi. Við nýttum þann mikla sveigjanleika sem félagið býr yfir til að laga sætaframboð að markaðsaðstæðum og jukum fjölda tengifarþega um 48 prósent með aukinni áherslu á þann markað þar sem markaðurinn til Íslands …

Áður en skemmtiferðaskipin taka að fylla götur Ísafjarðar af forvitnum ferðalöngum eru tvær helgar að vori sem fylla bæinn af heldur ólíkum hópum fólks. Sú fyrri er páskahelgin þegar tónlistarfólk og áhangendur þeirra þyrpast í bæinn til að taka þátt í rokkhátíð alþýðunnar, Aldrei fór ég suður, og sú síðari er Fossavatnshelgin, sem fór fram …

Tekjur Finnair drógust saman um tvö prósent á fyrsta fjórðungi ársins þrátt fyrir að finnska flugfélagið hafi aukið framboðið. Skýringin á samdrættinum liggur í verkföllum, verri sætanýtingu og lægri tekjum af fraktflutningum samkvæmt uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Rekstrarkostnaður Finnair á fyrsta ársfjórðungi var á pari við sama tímabil í fyrra og tapaði …

Allt þar til að Boeing Max krísan hófst, í ársbyrjun 2019, framleiddi Boeing fleiri þotur en keppinauturinn, Airbus. Kyrrsetningar og endurteknir framleiðslugallar hafa hins vegar orðið til þess að hægt hefur á framleiðslunni í verksmiðlum Boeing og eftirspurnin minnkað. Í fyrra framleiddi Airbus 735 þotur en Boeing 528 og mun bilið að öllu óbreyttu breikka …

Fataverslunin Húrra Reykjavík opnar í brottfararsal Keflavíkurflugvallar í vor og verður þar boðið upp á úrval af fatnaði og skóm frá vinsælum vörumerkjum fyrir farþega á leið úr landi. „Við erum að stíga stór skref með opnun þessarar nýju og glæsilegu verslunar, sem á sér stað í tilefni af 10 ára afmæli fyrirtækisins. Þetta er …

MYND: ÓJ

„Þetta er ein heitasta gjafavara Íslands, það get ég sagt fullum fetum. Seljum mikið á netinu hjá okkur út um allan heim,“ segir Baldur Ólafsson, markaðsstjóri Bónus, við fyrirspurn FF7 um vinsældir burðarpoka Bónus meðal ferðamanna.  Áberandi er við verslanir Bónus í miðborginni að ferðamenn kaupa þar gjarnan marga burðarpoka úr endurefni efni sem skarta …

Koffínlausar kaffibaunir eru hefðbundnar kaffibaunir þar sem beiskjuefnið og örvandi hlutinn koffín hefur verið fjarlægt. Útbreiddasta og ódýrasta ferlið við að losa baunirnar við koffínið er hins vegar orðið umdeilt þar sem efnasambönd sem við það eru notuð eru nú tengd við ýmsa heilsufarskvilla.Hægt er að beita nokkrum aðferðum við að losa kaffibaunir við koffín. …

Þrjátíu og átta trilljónir er tala sem er svolítið erfitt að skilja. Trilljón er notað í Bandaríkjunum yfir það sem við Íslendingar köllum billjón, og billjón er þúsund milljarðar, eða milljón milljónir. Á núverandi gengi eru 38 trilljónir Bandaríkjadala sama og 5.320 billjónir íslenskra króna, eða 5,3 milljón milljarðar.  Það er gott að hafa þetta …