Flugfarþegum innan Evrópu fjölgaði um sex af hundraði í maí síðastliðnum og mestur var vöxturinn í þeim löndum álfunnar sem eru ekki hluti af Evrópusambandinu. Til að mynda í Georgíu, Svartfjallalandi og Úkraínu auk hér á landi samkvæmt samantekt ACI Europe, samtaka evrópskra flughafna.
Hægari vöxtur í Evrópusambandslöndunum skýrist að hluta til af verkföllum, óhagstæðum veðurskilyrðum og gjaldþrotum flugfélaganna Monarch og Airberlin að því sem fram kemur í úttekt ACI. Það munu helst vera flugvellir í suður- og austurhluta Evrópu sem vaxa hraðast auk Finnlands og Lúxemburg.
Evrópskum flughöfnum er skipt upp í nokkra stærðarflokka hjá ACI og það er skemmst frá því að segja að Keflavíkurflugvöllur eru í toppsætinu í sínum flokki eins og sjá má.
Farþegaaukning í maí á flughöfnum með 5 til 10 milljónir farþega:
- Keflavíkurflugvöllur (+26.5%)
- Seville (+26.1%)
- Rhodes (+20.8%)
- Riga (+20.4%)
- Þessalóníka (+18.2%)