Samfélagsmiðlar

Vissara að bóka bílastæði við Keflavíkurflugvöll fyrir sumarferðina

Vegna veðurs biður Isavia farþega um að bóka bílastæði á netinu með góðum fyrirvara.

Nú er álagstímabil í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og ef marka má umræðuna um sumarveðrið á stórum hluta landsins má ætla að töluvert verði um að Íslendingar leggi í ferðalög til útlanda í júlí og ágúst. Það má því búast við því að bílastæði við flugvöllinn verði þétt setin á næstu vikum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia þar sem farþegar eru hvattir til að tryggja sér bílastæði með því að bóka á netinu fyrir brottför.

Bókunarkerfi á nýjum vef Isavia var tekið í gagnið fyrr á þessu ári en þar er hægt að tryggja sér bílastæði á sama tíma og ferð er bókuð og þá á betri kjörum en þegar greitt er við hlið.

„Við bendum farþegum á að huga að því að mæta fyrr í innritun ef þeir eiga flug bókað á álagstímum. Álagstoppar við brottför frá Keflavíkurflugvelli eru á morgnana á milli 6:00-8:30 og í eftirmiðdaginn á milli kl. 15:00-17:30. Að auki er vert að benda á að mest er umferðin á fimmtudögum og sunnudögum. Við bendum farþegum sem eiga flug bókað á þessum tímum að vera mættir 2-3 tímum fyrir brottför. Mismunandi er hvenær flugfélög opna fyrir innritun en almennt er það um 2-3 klukkustundum fyrir brottför. Þá bendum við einnig á sjálfsafgreiðslustöðvar í flugstöðinni þar sem farþegar geta sjálfir innritað sig, auk þess sem hægt er að skila töskum við sjálfsinnritunarborð sem eru alltaf opin,“ segir í tilkynningunni.

Þeir sem kjósa heldur að nýta sér sætaferðir út á Keflavíkurflugvöll geta valið á milli áætlunarferða Airport Direct, Airport Express og Flugrútunnar. Auk þess býður Strætó upp á reglulegar ferðir út völl.

Nýtt efni

Fyrir viku hélt Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fund með helstu ráðgjöfum sínum, innanríkisráðherra og fulltrúum veðurstofu og almannavarna landsins til að ræða viðbrögð við hitatíðinni framundan, frá apríl til júní. Sérstaklega er talin ástæða nú til aðgæslu vegna áhrifa loftslagsbreytinga á veðurfar. Verulegar líkur eru taldar á að hiti fari fram úr venjulegum hámarkshita í …

Frumvarp um að veita þúsundum óskráðra innflytjenda á Spáni heimild til landvistar og atvinnu er nú til meðferðar í fulltrúadeild spænska þingsins (Congreso de los Diputados) eftir að 700 þúsund manns höfðu undirritað áskorun um setningu laga þessa efnis. Nærri 900 samtök studdu þessa áskorun um að breyta stöðu óskráðra útlendinga í landinu.  Ef fyrirliggjandi …

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …