Samfélagsmiðlar

WOW air fær samkeppni frá British Airways

Eina Evrópuflugið sem stendur farþegar á flugvellinum í Pittsburgh til boða, allt árið um kring, er flug WOW air til Íslands. Frá og með vorinu ætlar hins vegar British Airways að blanda sér í baráttuna í Stálborginni svokölluðu.

pittsburgh a

Það ríkti mikil eftirvænting í bandarísku borginni Pittsburgh þegar WOW air tilkynnti komu sína til borgarinnar í lok árs 2016. „Við erum mjög spennt fyrir því að bjóða WOW velkomið til Pittsburgh og þar með fá beint flug yfir hafið allan ársins hring,” hafði Túristi þá eftir Tom Loftus, talsmanni ferðamálaráðs Pittsburgh. Staðan var nefnilega sú að þrátt fyrir mikinn uppgang í borginni þá takmarkaðist flug til Evrópu við sumarferðir til Parísar og Frankfurt.

Jómfrúarferð WOW til Pittsburgh var svo farin í júní í fyrra og í boði voru fjórar ferðir í viku. Þá rúmu sex mánuði sem WOW air flug til Pittsburgh í fyrra þá flutti félagið samtals 41.095 farþega til og frá borginni. Að jafnaði var 75,5 prósent sætanna skipuð farþegum samkvæmt útreikningum Túrista sem byggja á upplýsingum frá flugmálayfirvöldum vestanhafs. Tölur fyrir þetta ár eru ennþá ekki opinberar en þess má geta að svona upplýsingar eru ekki veittar hér á landi og hefur Túristi kært þann skort á upplýsingum.

Allar götur frá því að WOW bætti Pittsburgh við leiðakerfi sitt hefur félagið verið eitt um heilsárs Evrópuflug en í gær boðaði British Airways komu sína til borgarinnar. Líkt og WOW ætlar breska félagið að fljúga til borgarinnar fjórum sinnum í viku frá Heathrow flugvelli við London. Í bresku höfuðborginni er Gatwick flugvöllur heimahöfn WOW air en félagið bætti reyndar við sumarflugi til Stansted í ár.

 

Nýtt efni

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …