Samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar voru brottfarir erlendra farþega frá Íslandi rúmlega 278.600 í júlí sem er 2.5% fjölgun miðað við júlí í fyrra. Fjölgunin í júlí byggir að mestu leyti á Bandaríkjamönnum sem hafa aukið hlutdeild sína til muna. Rúmlega 27% fleiri Bandaríkjamenn fóru frá Leifsstöð í júlí í ár en á sama tíma í fyrra. Norðurlandabúum, Bretum, Frökkum, Þjóðverjum og Kanadamönnum, sem einnig tilheyra mikilvægum markaðssvæðum fyrir Ísland, fækkaði hins vegar um 9 til 19% í júlí á milli ára. Ef fjöldi Bandaríkjamanna hefði staðið í stað milli ára hefði brottfararfarþegum í júlí fækkað um 5,6% samkvæmt því sem segir í tilkynningu frá Ferðamálastofu.
Þar er jafnframt vakin athygli á því að ferðamannaspá Isavia, sem kynnt var 30. maí, hefur ekki gengið eftir. Sú spá gerði ráð fyrir samdrætti í júní og júlí en raunin er sú að ferðafólki fjölgaði um 19 þúsund í júní og um 37 þúsund í júlí.