Samfélagsmiðlar

Primera Air dregur saman í Bretlandi og hættir við Íslandsflug

Flugfélag Andra Más Ingólfssonar hefur fellt niður stóran hluta af flugferðum sínum milli Bretlands og Spánar frá og með haustinu.

Sókn flugfélagsins  Primera Air inn á breska markaðinn hefur ekki gengið snuðrulaust fyrir sig. Fyrr á árinu dróg flugfélagið verulega úr Ameríkuflugi sínu frá Birmingham og í dag berast þau tíðindi að Primera Air hafi fellt niður allt flug frá bresku borginni til Mallorca og Barcelona í byrjun næsta mánaðar. Í lok október leggjast svo af allar ferðir frá Birmingham til  Alicante, Las Palmas, Malaga og Tenerife. Auk þess verður ekkert úr áætlunum um flug milli Íslands og Birmingham í vetur. Frá Stansted flugvelli við London hafa ferðir til Malaga og Alicante verið felldar niður að hluta til.

Haft er eftir talsmanni Birmingham flugvallar, í frétt Independent, að ákvörðun forsvarsmanna Primera Air valdi vonbrigðum þar sem eftirspurn eftir þessum flugleiðum hafi verið mikil. Í tilkynningu frá flugfélaginu kemur fram að farþegar fái bætur í samræmi við evrópskar reglur.

Í frétt breska blaðsins er talað um Primera Air sem íslenskt/lettneskt flugfélag jafnvel þó það sé ekki með íslenskt flugrekstrarleyfi. Íslenska tengingin er þó sterk því Primera Travel Group, móðurfélag Primera Air, er alfarið í eigu Andra Más Ingólfssonar.

Nýtt efni

Farþegar á leið til New York frá Róm, París, Ósló, London, Berlín eða Aþenu geta flogið beint með norska lágfargjaldaflugfélaginu Norse Atlantic. Í mörgum tilfellum er félagið með ódýrustu sætin á þessum leiðum og keppir því við íslensku flugfélögin um þá farþega sem vilja komast á milli fyrir sem minnst og setja það ekki fyrir …

„Tilgangurinn er að sýna hvað höfuðborgarsvæðið hefur að bjóða í ferðaþjónustu og byggja upp þekkingu meðal þeirra sem í henni starfa," sagði Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, þegar FF7 hitt hana skömmu eftir að sýningin HITTUMST var opnuð í Hafnarhúsinu í dag. Nokkur hópur var þegar kominn að skoða það sem í boði er …

Hilton-hótelkeðjan hefur gert samning um byggingu og rekstur tveggja hótela hér á landi í samstarfi við Bohemian Hotels ehf. Stefnt er að því að opna það fyrra við Hafnarstræti á Akureyri næsta sumar en þar verða 70 herbergi og mun hótelið bera heitið Skáld Hótel Akureyri. Seinna hótelið opnar við Bríetartún, við hlið Frímúrarahallarinnar í …

Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugi til Cardiff í Wales og er þetta gert vegna mikils áhuga á leikjum íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Wales í Þjóðadeildinni sem fara fram næstkomandi haust.  Þetta kemur fram í tilkynningu. Íslenska liðið mætir liði Wales á Laugardalsvelli 11. október en liðin mætast aftur á heimavelli Wales í Cardiff …

Í þeirri viðleitni að hemja troðningstúrisma hafa borgaryfirvöld í Amsterdam ákveðið að leyfa ekki byggingu fleiri hótela í miðborginni. Þrátt fyrir að kröfur hafi verið hertar í borginni gagnvart nýbyggingum hótela þá eru yfir 20 hótel nú á teikniborðinu, segir NL Times. Takmörkunin nær auðvitað ekki til þeirra hótela sem þegar hafa verið samþykkt. Túristar …

Como-vatn á Langbarðalandi dregur til sín um 1,4 milljónir ferðamanna á ári - og í glæsihúsum við vatnið hefur margt frægt og ríkt fólk athvarf. Meðal þeirra sem eiga hús þarna eru George Clooney, Donnatella Versace og Richard Branson. Kannski er það ekki síst efnaða fólkið sem orðið er þreytt á átroðningi - að venjulegir …

Allt frá því að Play var skráð á hlutabréfamarkað sumarið 2021 og fram til ársloka 2022 var Fiskisund ehf. stærsti hluthafinn í Play með 8,6 prósenta hlut. Fyrir Fiskisundi fóru þau Kári Þór Guðjónsson, Halla Sigrún Hjartardóttir og Einar Örn Ólafsson, sem lengi var stjórnarformaður flugfélagsins en settist í forstjórastólinn um síðustu mánaðamót. Einar Örn átti einnig …

Flugstöðin í Changi í Singapúr er ekki lengur í efsta sæti á árlegum lista Skytrax yfir bestu flugvellina heldur í öðru sæti. Hamad alþjóðaflugvöllurinn í Doha í Katar toppar nú listann sem birtur var í gær en hann byggir á einkunnagjöf farþega. Í þriðja sæti er Incheon í Seoul en í næstu tveimur sætum eru …