Samfélagsmiðlar

Veita ítarlegri upplýsingar um stöðu WOW air

Tveimur blaðsíðum hefur verið bætt við kynninguna á umtöluðu skuldabréfaútboði íslenska flugfélagsins. Þar kemur í fyrsta sinn fram hver niðurstaða rekstrarins var á seinni hluta síðasta árs.

wow gma Friðrik Örn Hjaltested

Í fyrra var tap af rekstri WOW air upp á nærri 2,4 milljarða króna en flugfélagið var þó réttum megin við núllið á seinni helmingi ársins. Þá var rekstrarhagnaðurinn rétt um milljarður króna (10 milljónir dollara) og á seinni hluta þessa árs er gert ráð fyrir nærri þrefalt meiri hagnaði eða 2,8 milljarða króna afgangi (26 milljónir). Skýringin á bættri afkomu skýrist meðal annars af 9,1% hærri einingatekjum (RASK) á meðan einingakostnaður (CASK) stendur í stað.

Í viðtali við RÚV í vikunni sagði Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW, að svokallaðar hliðartekjur félagsins næmu nú 57 dollurum (6.100 kr.) á hvern farþega sem væri há tala miðað við samkeppnisaðilana. Benti Skúli jafnframt á að framlegð af sölu á aukaþjónustu væri hærri en af sölu stakra farmiða.

Íslensku félögin töpuðu um 2 milljörðum á mánuði

Þessar upplýsingar um afkomuna seinni sex mánuðina í fyrra og í ár er nú að finna í uppfærðu skjali á heimasíðu fjármálafyrirtækisins Pareto sem sér um útboð á skuldabréfum upp á 6 til 12 milljarða fyrir íslenska flugfélagið. Áður var upplýsingagjöfin takmörkuð við síðustu 12 mánuði, þ.e. 1. júlí 2017 til 30. júní 2018, en á því tímabili er tapið af rekstri WOW um 4,8 milljarðar króna. Sem fyrr segir liggur núna fyrir að seinni sex mánuðina í fyrra var hagnaðurinn um milljarður og það þýðir að fyrstu sex mánuði þessa árs hefur WOW tapað um 5,8 milljörðum en til samanburðar nam tapið hjá Icelandair um 6,3 milljörðum. Íslensku flugfélögin tvö hafa því samanlagt tapað um 2 milljörðum á mánuði á fyrri helmingi þessa árs. Hafa ber í huga að rekstur flugfélaga er almennt þungur á því tímabili og hagnaðurinn mestur á þriðja ársfjórðungi.

Nærri helmingi lægri kostnaður en hjá Icelandair

Tölur um afkomu WOW á seinni hluta þessa árs og í fyrra eru ekki eina viðbótin í skuldabréfakynningunni. Þar kemur einnig fram að einingakostnaður WOW (CASK) er um helmingi lægri en hjá Icelandair. Kostnaður á hvern floginn kílómetra er nefnilega 4,8 sent á dollara en 9 hjá Icelandair. Bilið á milli félaganna er þó aðeins minna ef eldsneytiskostnaður er tekinn með og skýringuna á því er líklega að finna í þeirri staðreynd að Icelandair kaupir töluvert af sínu þotueldsneyti fram í tímann en WOW air ekki. Og í dag þegar olíuverð fer hækkandi þá er fyrri leiðin hagstæðari. Á þessari nýju glæru er einnig að finna einingakostnað fleiri flugfélaga eins og er hann oftar en ekki hærri hjá hinum flugfélögunum en hjá WOW air. Viðbót 26.ágúst: Glæran um einingakostnað flugfélaganna hefur verið fjarlægð þar sem útreikningar á kostnaði Icelandair innihéldu allan rekstur Icelandair Group, t.d. hótelrekstur, ferðaþjónustustarfsemi og fleira. Raunverulegur einingakostaður Icelandair mun því vera lægri en fram kom.

Í viðtali við Túrista í mars árið 2015 þá tjáði Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, sig um einingakostnað WOW air og sagði að hann hefðir verið 7,3 sent á dollara árið 2014 en stefnt væri á 5,5 sent árið 2015. Af þeim tölum að dæma þá hefur flugfélagið náð fram töluverði hagræðingu þrátt fyrir styrkingu krónu og hærri launakostnað.

 

Nýju glærurnar í kynningu á skuldabréfaútboði WOW:

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …