Júlí er næst umsvifamesti mánuðurinn í íslenskri ferðaþjónustu og samkvæmt talningu Ferðamálastofu þá fjölgaði brottförum útlendinga frá Keflavíkurflugvelli um 2,5 prósent í júlí í ár. Nýjar tölur Hagstofunnar sýna hins vegar að gistnóttunum útlendinga á hótelum hér á landi fækkaði um 2,3 prósent. Samdrátturinn náði til allra landshluta nema Suðurlands þar sem hótelnætur erlendra ferðamanna voru ríflega 4 þúsund fleiri en í júlí í fyrra. Hlutfallslega var fækkunin mest á Norður- og Austulandi eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.
Ekki liggja fyrir tölur fyrir aðrar tegundir gistingar og því ekki hægt að segja til um hvort dvalartími útlendinga hafi styst í sumar.
Þegar litið til einstakra þjóðerna þá sést að nóttunum fækkaði hjá 15 af þeim 20 þjóðum sem keyptu flestar hótelgistingar hér á landi í júlí. Bandaríkjamenn, Kínverjar, Ísraelar, Rússar og Indverjar juku viðskipti sín við íslensk hótel en aftur á móti fækkaði þýskum hótelgestum verulega eða um ríflega fjórðung.