Samfélagsmiðlar

American Airlines tekur upp þráðinn næsta sumar

Stærsta flugfélag í heimi hóf að fljúga til Íslands í sumar og mun snúa hingað á ný á næsta ári. Ekki er ljóst hvort íslensku félögin muni veita því ameríska samkeppni á ný.

Dallas í Texas er ein af þeim borgum sem bættust við leiðakerfi Keflavíkurflugvallar í sumar og óhætt er að segja að samkeppnin á þessari nýju flugleið sé mikil. Íslensku flugfélögin bjóða nefnilega bæði upp á ferðir til borgarinnar og það gerir American Airlines líka. Það síðastnefnda bættist í hópinn eftir að forráðamenn Icelandair og WOW höfðu tilkynnt um nýtt flug til Dallas. Borgin er höfuðvígi American Airlines og var almennt litið á viðbrögð bandaríska flugfélagsins sem skilaboð til íslensku félaganna að þau skildu ekki gera sig breið í Texas.

Forsvarsfólk American Airlines hefur þó gert lítið úr þessum vangaveltum og sagt að flugið til Íslands hafi ekkert með komu íslensku félaganna til Dallas að gera. Hvað sem því líður þá er ljóst að fyrsta vertíð American Airlines á Íslandi hefur gengið vel. „Við erum mjög ánægð með frammistöðu þessarar flugleiðar og munum þess vegna halda áfram næsta sumar,“ segir Martha Thomas, upplýsingafulltrúi American Airlines. Hún gerir ráð fyrir að fyrirkomulagið verði álíka og nú í sumar, það er daglegar brottfarir og sú fyrsta farin í byrjun júní og sú síðasta í lok október.

Hjá Icelandair er hægt að bóka beint flug til Dallas í allan vetur og líka næsta sumar. Guðjón Arngrímsson, talsmaður félagsins, segir að flugið þangað hafi farið ágætlega af stað. „Sérstaklega í ljósi þess hversu mikil samkeppni hefur verið til staðar. Það bendir til þess að sá áhugi og kaupgeta sem við vonuðumst eftir að væri til staðar í Texas á Íslandsferðum og tengiflugi okkar til Evrópu sé raunveruleg og það lofar góðu.“

Aðspurð um framhaldið í Dallas þá segir Svanhvít Friðriksdóttir hjá WOW air að þotur félagsins muni fljúga til þangað fram til 26. október en vor- og sumaráætlun félagsins fyrir næsta ár liggi ekki fyrir. Það er því ekki ljóst hvort brottfarirnar héðan til Dallas verði að jafnaði 2 á dag næsta sumar en svo margar hafa þær verið síðustu vikur.

Samkvæmt tölum frá flugvellinum í Dallas þá flutti Icelandair samtals 4.479 farþega til og frá borginni í júní en hjá WOW air nam fjöldinn 6.649. WOW notar breiðþotur í ferðir sínar sem rúma 345 farþegar á meðan Icelandair styðst við 183 sæta Boeing þotur. Miðað við talningu Túrista á fjölda ferða þá hefur nýtingin hjá WOW air, í Dallasfluginu, verið 86,8 prósent í júní en 76,5 prósent hjá Icelandair. Tölur fyrir júlí liggja ekki fyrir.

Þess má geta að upplýsingar um farþegafjölda á einstökum flugleiðum eru ekki fáanlegar hjá Isavia. Túristi hefur kært þann upplýsingaskort og hefur úrskurðanefnd upplýsingamála veitt Isavia frest til 17. september til að færa rök fyrir ákvörðun sinni.

Nýtt efni

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …

Fyrr á þessu ári kynnti fyrirtækið til sögunnar Precious Honeyglow anansinn sem er aðeins um 600 1000 grömm að þyngd eða um það bil helmingi minni en hefðbundinn ananas.Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að það kappkosti ávallt að uppfylla óskir kaupenda, hvort sem þær eru um sætara bragð, sjálfbærnisjónarmið og nú – stærð. Hið nýja …

Tekjur Icelandair af farþegaflugi námu rúmlega 27 milljörðum króna á fyrsta fjórðungi ársins og hafa þeir aldrei verið hærri á þessum tíma árs. Sætaframboðið hefur heldur aldrei verið meira en það jókst það um 21 prósent á milli ára og var farþegahópurinn 14 prósent fjölmennari núna en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra. Þá stóðu farþegar …