Innanlandsflugið tók dýfu

Nærri sjö þúsund færri flugu innanlands í júlí í samanburði við sama tíma í fyrra. Breytt samsetning erlendra ferðamanna hefur þar mikil áhrif.

flugvel innanlands isavia
Mynd: Isavia

Rétt rúmlega 77 þúsund farþegar flugu innanlands í júlí og er það samdráttur um 6 þúsund farþega frá sama tíma í fyrra. Til samanburðar fækkaði farþegum í innanlandsflugi samtals um 8 þúsund á fyrri helmingi ársins og niðursveiflan í júlí er því mikil. Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Air Iceland Connect, segir að skýringuna á þessari þróun sé að meðal annars að finna í breyttri samsetningu erlendra ferðamanna. „Mikil fækkun hefur orðið í komum ferðamanna frá Evrópu sem hefur áhrif á fjölda farþega í innanlandsflugi því þeir eru mjög stór hluti farþega yfir sumarmánuðina.“ Árni gerir ráð fyrir sambærilegri þróun í nýliðnum ágúst en tölur fyrir mánuðinn liggja ekki fyrir.

Ásgeir Örn Þorsteinsson hjá Flugfélaginu Ernir segir að þar á bæ hafi orðið fækkun í fluginu til Húsavíkur líkt og við var að búast því stórum framkvæmdum þar sé nánast lokið. „Einnig varð fækkun á Eyjar en það skýrist að mestu leiti af veðrinu.“ Slæmt veður dróg einnig úr eftirspurn eftir útsýnisflugi frá Reykjavík að sögn Ásgeirs Arnar en hann gerir ráð fyrir að ágúst í ár standi nokkurn veginn í stað miðað við sama tíma í fyrra.