23 ný olíumálverk eftir Tolla munu setja svip sinn á flugstöðina á Egilsstöðum frá og með deginum i dag. Sýningin er í boði Isavia, rekstraraðila flugvallarins, en öll verkin eru ný af nálinni og eru öll til sölu. Þetta er fyrsta sýning af nokkrum á verkum Tolla sem settar verða upp á innanlandsflugvöllu á Íslandi á komandi mánuðum.
„Á síðasta ári kom ég að máli við Isavia með þá hugmynd að nýta húsakostinn á flugstöðum landsins til sýningarhalds þar sem þarna væri gott veggjaplás , hátt til lofts og vítt til veggja,“ segir Tolli. „Lýsing í flugstöðunum er iðulega góð og mikið rennsli af fólki í gegnum húsinn. Var tekið vel í þessa hugmynd af forráðamönnum Isavia og þegar ráðist í að framkvæma þetta,“ segir Tolli í tilkynningu.
Opnun listaverkasýningar er ekki eini atburðurinn á Egilsstaðaflugvelli um helgina því á morgun, laugardag, býður Hjörvar Steinn Grétarsson skákmeistari til fjölteflis í flugstöðinni á Egilsstöðum klukkan 11. Þeir sem ná jafntefli eða vinna fá vinninga, auk þess sem þrenn aukaverðlaun verða dregin út.