Samfélagsmiðlar

Nýir tímar hjá Icelandair á Keflavíkurflugvelli

Icelandair boðar breytingar á leiðakerfi sínum á næsta ári með Evrópuflugi rétt fyrir hádegi og til N-Ameríku á kvöldin.

Ein af nýju Boeing MAX þotum Icelandair.

Icelandair hefur hafið sölu á flugi til fjölmargra áfangastaða á brottfarartímum sem ekki hafa áður verið í boði hjá félaginu. Um er að ræða breytingu á leiðakerfi félagsins sem felst í því að auk núverandi tengitíma á Keflavíkurflugvelli, snemma morguns og síðdegis, verður frá og með maí 2019 boðið upp á flug til Evrópuborga um klukkan hálf ellefu að morgni og til Norður-Ameríkuborga um klukkan átta að kvöldi.

Tilgangur breytinganna er að skapa félaginu ný tækifæri til vaxtar, bæta þjónustu við farþega og auka sveigjanleika samkvæmt því sem segir í tilkynningu frá Icelandair. Það kemur jafnframt fram að ekki hafi verið svigrúm til að bæta við flugi eða farþegum á Keflavíkurflugvelli á háannatímanum að morgni og síðdegis, en á nýju brottfarartímunum er nægt rými í flugstöðinni, við brottfararhlið og á flughlöðum.

„Þessi breyting, sem verið hefur í undirbúningi um hríð, er nýr áfangi í framtíðarvexti félagsins“, segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group. „Við erum að þróa tengimöguleika okkar núverandi leiðakerfis en auk þess að koma inn á markaðinn með nýja þjónustu. Fyrir Íslendinga getur t.d. verið þægilegt að þurfa ekki að vakna snemma á morgnana fyrir Evrópuflug, og einnig að fljúga vestur um haf að kvöldi til. Við erum jafnframt að horfa til þess að laga það ójafnvægi sem var í leiðakerfinu á árinu 2018.“

Breytingin tengist einnig endurnýjun flugflota Icelandair, en félagið tekur á móti sex nýjum Boeing MAX þotum snemma á næsta ári til viðbótar við þær þrjár sem komu á þessu ári. „Nýr floti styður við þessa breytingu á leiðakerfinu. Nýtingin á flugvélunum mun aukast en um leið léttir þetta álagið á Keflavíkurflugvelli og þjónusta við farþega verður betri. Endanleg flugáætlun fyrir árið 2019 liggur ekki fyrir, enn er verið að greina hvort nýir áfangastaðir bætast við og hvort hætt verði flugi til einhverra af núverandi áfangastöðum. Jafnframt erum við að skoða tíðni til núverandi áfangastaða og hafa því ekki verið teknar ákvarðanir varðandi vöxt á næsta ári.“, segir Bogi Nils.

Endanleg flugáætlun félagsins verður birt þegar hún liggur fyrir. Nýi tengibankinn verður nokkru minni en aðaltengibankinn. Boðið verður upp á flug til Evrópuborga um klukkan 10:30 og flug frá sömu borgum munu lenda á Keflavíkurflugvelli um kl 18:30. Þær borgir í Evrópu sem búið er að ákveða að fari inn í þennan tengibanka eru Frankfurt, München, Amsterdam, Kaupmannahöfn, Stokkhólmur, Ósló, París, Brussel, Berlín, Hamborg og Zürich. Einnig verður áfram flogið til þessara borga á sama tíma og undanfarin ár. Flogið verður til Norður-Ameríkustaða um kl. 20:00 og flug frá þeim borgum muni lenda á Íslandi um kl. 09:30 að morgni. Borgirnar eru Boston, New York, Washington, Chicago, Minneapolis og Toronto.

Eins og Túristi þá var vægið á milli flugferða Icelandair til N-Ameríku og Evrópu annað í sumar en árin á undan. Forsvarsmenn félagsins hafa líka viðurkennt að þetta ójafnvægi hafi reynst félaginu erfitt.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …