Flugumferðin hefur aukist hratt síðustu ár og ekkert lát virðist á. Árið 2020 er því spáð að losun gróðurhúsalofttegunda frá flugi verði 70 prósent meiri en árið 2005 samkvæmt því sem segir á vef Umhverfisstofnunnar. Og rekja má rúm 2 prósent af heildarlosun í heiminum til flugstarfsemi. Þrátt fyrir að fólk verði sífellt meðvitaðra um þetta þá dregur ekki úr áhuga okkar á að fljúga. Til marks um það þá kemur fátt í veg fyrir að ferðametið sem Íslendingar settu í fyrra verði bætt í ár.
Sem dæmi um hversu mikið flugumferðin mengar þá er losun á hvern farþega í flugi á milli Íslands og Kaupmannahafnar, báðar leiðir, á við losun frá litlum einkabíl í rúmt hálft ár. Það á þó ekki við um allar flugferðir samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar á vegum samtakanna ICCT þar sem lagt var mat á hvaða flugfélög nýta þotueldsneytið best miðað við fjölda farþega og fluglengd. Litið var til 20 af þeim flugfélögum sem eru stórtækust í flugi milli Evrópu og Norður-Ameríku. Icelandair og WOW eru umsvifamikil á þeim markaði.
Niðurstaða rannsóknarinnar er sú að Norwegian nýtir eldsneytið best og þar á eftir kemur WOW air með þrettán prósent lakari nýtingu en norska flugfélagið. Þotur Icelandair þurfa svo um 29 prósent meira eldsneyti á hvern floginn kílómetra en þotur Norwegian og 15 prósent meira en WOW air. Nýtingin hjá Icelandair er í meðallagi af þeim 20 flugfélögum sem mæld voru en uppistaðan í flota flugfélagsins eru Boeing 757 þotur sem eru orðnar rúmlega 20 ára. Meðalaldur flugvélanna sem WOW air nýtir er um þrjú ár. Þess er getið í skýrslu ICCT að eldsneytisnýtingin hjá Icelandair ætti að lækka á næstu árum með tilkomu nýrra Boeing MAX þota sem félagið er nú að taka í notkun. Þær eyða um fjórðungi minna en gömlu þoturnar.
Betri nýting á eldsneyti skrifast þó ekki bara á aldur hreyfla og flugvéla. Sá þáttur vegur engu að síður þyngst (39%) og þar á eftir kemur fjöldi sæta um borð (33%). Þeim mun meira bil sem er á milli sæta því verri verður eldsneytisnýtingin og því koma stóru evrópsku flugfélögin, British Airways og Lufthansa, illa út úr samanburðinum enda þau vinsæl hjá þeim sem vilja mikið pláss um borð. Fá stór sæti með mikið sætabil viðskiptafarrými um borð í þotum Norwegian og WOW air er því ein af ástæðum þess að flugfélögin tróna á toppnum samkvæmt því sem segir í skýrslu ICCT. Forstjóri WOW hefur reyndar boðað aukna áherslu á stór sæti, svokölluð Comfy og Premium sæti.
Sætanýting og þyngd á frakt skýra svo um 28% af heildarnýtingu olíunnar sem dælt er á þoturnar sem fljúga milli Evrópu og Norður-Ameríku.